á 45 sekúndna fresti deyr barn af völdum malaríu. Flugnanet til að koma í veg fyrir malaríu kostar aðeins 776 krónur.
Þú ert hér:
Alþingi samþykkti í gær þingsályktunartillögu um að Barnasáttmáli Sameinuðu þjóðanna yrði lögfestur á Íslandi. Ísland og Noregur verða þá einu löndin sem lögfest hafa sáttmálann, þó að flest lönd heims hafi staðfest hann. Í framhaldinu fer fram endurskoðun á barnaverndarlögum með sáttmálann í huga. UNICEF á Íslandi fagnar þessu mikilvæga skrefi sem nú hefur verið tekið á alþingi í átt að auknum réttindum barna á Íslandi.