Vissir þú að...

UNICEF er á svæðinu fyrir, á meðan og eftir að neyð skellur á. Sem heimsforeldri ert þú með okkur allan tímann.

Þú ert hér:  

Barnasáttmáli Sameinuðu þjóðanna 20 ára

Barnasáttmáli Sameinuðu þjóðanna er 20 ára í dag, föstudaginn 20. nóvember. Barnasáttmálinn felur í sér alþjóðlega viðurkenningu á því að börn hafi sjálfstæð réttindi, óháð foreldrum eða forsjáraðilum og að þau þarfnist sérstakrar umönnunar og verndar umfram hina fullorðnu.

Samningur Sameinuðu þjóðanna um réttindi barnsins, sem í daglegu tali er nefndur Barnasáttmálinn, er eini alþjóðlegi samningurinn sem sérstaklega á við um börn. Samningurinn felur í sér alþjóðlega viðurkenningu á því að börn séu hópur sem hafi sjálfstæð réttindi, óháð foreldrum eða forsjáraðilum, og að þau þarfnist sérstakrar umönnunar og verndar umfram hina fullorðnu.

Barnasáttmálinn var samþykktur á allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna 20. nóvember 1989. Öll aðildarríki Sameinuðu þjóðanna, fyrir utan Bandaríkin og Sómalíu, hafa fullgilt sáttmálann og er hann því útbreiddasti mannréttindasamningur heims. Fullgilding felur í sér að ríki skuldbinda sig til þess að tryggja og virða þau réttindi barna sem fram koma í sáttmálanum. Sáttmálinn var undirritaður fyrir Íslands hönd árið 1990 og fullgiltur í nóvember 1992. Nú hefur verið ákveðið að lögfesta sáttmálann á Íslandi og er undirbúningur lögfestingarinnar í undirbúningi.

Nánar má fræðast um frumvarp til lögfestingar Barnasáttmálans í sérstöku vefriti dómsmála- og mannréttindaráðuneytisins hér.

Haldið verður upp á 20 ára afmælið í Snælandsskóla við Viðigrund í Kópavogi á morgun 20. nóvember kl 14.00. Forsætisráðherra Jóhanna Sigurðardóttir flytur ávarp og opnar nýjan námsvef um Barnasáttmálann, nemendur í 7. bekk flytja verk sem þeir hafa unnið í tilefni afmælisins og nemandi úr 10. bekk Snælandsskóla segir nokkur orð fyrir hönd ungmennaráða Barnaheilla, umboðsmanns barna og UNICEF.