Vissir þú að...

UNICEF er sjálfstæð stofnun innan Sameinuðu þjóðanna og sem slík er hún ekki á föstum framlögum frá Sameinuðu þjóðunum.

Þú ert hér:  

Barnasáttmáli S.þ. lögfestur á Íslandi?

Næstkomandi mánudag mun fara fram atkvæðagreiðsla á alþingi um þingsályktunartillögu sem fjallar um lögfestingu Samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi barnsins eða Barnasáttmálann. UNICEF á Íslandi fagnar þessu, en það var einróma álit allsherjarnefndar að samþykkja tillöguna. M.a. er lagt til að frumvarp til laga verði sett fram fyrir 20. nóvember 2009, en þá verða liðin 20 ár síðan þessi útbreiddasti mannréttindasáttmáli heims var fyrst samþykktur á allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna.

Allar þjóðir heims, utan Sómalíu og Bandaríkjanna, hafa staðfest sáttmálann, en aðeins Noregur hefur lögfest hann. Ísland skrifaði undir hann árið 1992.