hlutfallslega flestir heimsforeldrar eru á Íslandi eða 5% þjóðarinnar. Svíar eru samt að ná okkur... koma svo, vertu með!
Þú ert hér:
Dagana 3. til 7. júlí stóð UNICEF í Gíneu-Bissá, ásamt fleiri samtökum, fyrir viðamiklu heilsuátaki í þágu bissáskra barna undir fimm ára aldri. Átakið náði til allra svæða landsins og er áætlað að í krafti þess hafi um 25.000 börn fengið A-vítamín, aformunarlyf og bólusetningu gegn mislingum og fleiri sjúkdómum.
Mislingar eru fjórða algengasta dánarorsök barna undir fimm ára aldri í Gíneu-Bissá. Malaría, niðurgangssjúkdómar og lungnabólga eru hins vegar skæðustu dánarvaldarnir. Áður en byrjað var að bólusetja börn gegn mislingum með eins kerfisbundnum hætti og gert er í dag létust 30 af hverjum hundrað börnum sem fengu sjúkdóminn. Það er því ekki að furða að gamalt bissáskt máltak hljóðar svo: „Barn er ekki barn á tímum mislinga.“
Mikilvægt að ná til sem flestra barna
Auk þess að vera bólusett gegn mislingum fá börnin A-vítamín og aformunarlyf. Þetta eru einnig aðgerðir sem geta bjargað fjölda lífa þar sem A-vítamínskortur og sníkjuormar í meltingarfærum barnanna gerir þau berskjaldaðri gegn hvers kyns sjúkdómum og auka líkurnar á vannæringu.
UNICEF stendur fyrir heilsuátakinu í samvinnu við Alþjóðaheilbrigðisstofnunina (WHO), Bandaríska Rauða krossinn og fleiri félög og stofnanir.
Við upphaf átaksins hvatti yfirmaður UNICEF í Gíneu-Bissá, Silvia Luciani, alla foreldra, veraldlega sem andlega leiðtoga og fjölmiðla til að gera fjölskyldum landsins viðvart. Þannig mætti ná til allra barna og koma í veg fyrir ótímabær dauðsföll.