93 milljónir barna hafa ekki tækifæri til að ganga í skóla – meirihluti þeirra eru stúlkur.
Þú ert hér:
Í síðustu viku minntist UNICEF dags afrískra barna. Um leið fögnuðu samtökin þeim mikla árangri sem náðst hefur í að bæta lífsafkomu barna í fjölda Afríkulanda á undangengnum árum – þó gríðarlegt verk sé enn óunnið.
Sem dæmi um þann árangur sem náðst hefur má nefna að dauðsföll af völdum mislinga í Afríku sunnan Sahara hafa fallið um heil 89% á árunum 2000 til 2007. Þá hefur ungbarnadauði dregist saman um 40% eða meira í sumum af fátækustu löndum álfunnar – til dæmis Erítreu, Eþíópíu, Malaví og Níger – frá árinu 1990.
Eftir stendur engu að síður sú staðreynd að yfir helmingur þeirra 9,2 milljóna barna, sem árlega deyja fyrir fimm ára aldur, fæðist í Afríku.
Til að draga úr ungbarnadauða í Afríku er nauðsynlegt að tryggja börnum álfunnar ákveðna grunnþjónustu, strax við fæðingu. Mikilvægt er að mæður fái faglega aðstoð við sjálfa fæðinguna; að börn fái einungis brjóstamjólk á fyrstu mánuðum ævi sinnar verði því við komið; að bólusett sé gegn helstu barnasjúkdómunum; að börn fái fullnægjandi næringu; þau séu vernduð gegn malaríu og hljóti meðferð hafi þau sýkst; að mæður og börn með HIV fái viðeigandi meðferð og komið sé í veg fyrir smit milli móður og barns; að aðgangur að heilnæmu drykkjarvatni og fullnægjandi hreinlætisaðstöðu sé tryggður; og stuðlað sé að bættum hreinlætisvenjum.
„Sá árangur sem náðst hefur á undanförnum árum gefur tilefni til bjartsýni og sýnir að það starf sem UNICEF vinnur skiptir gríðarlegu máli,“ sagði Stefán Ingi Stefánsson, framkvæmdastjóri UNICEF á Íslandi, í tilefni dagsins. „Það er markmið okkar að tryggja enn fleiri afrískum börnum þau lífsskilyrði sem þau eiga rétt á.“