Vissir þú að...

UNICEF veitir börnum í yfir 90 löndum hreint vatn og bætir hreinlætisaðstöðu í skólum og samfélögum.

Þú ert hér:  

Dagur rauða nefsins er í dag!

Dagur rauða nefsins er í dag. Fjöldi fólks hefur lagt hönd á plóg til að gera daginn að veruleika en hápunkturinn er söfnunarútsending frá Borgarleikhúsinu í opinni dagskrá á Stöð 2 í kvöld. Þar munu grínistar og annað listafólk láta ljós sitt skína í þeim tilgangi að skemmta Íslendingum og safna styrkjum fyrir verkefni UNICEF í þágu bágstaddra barna um allan heim.

Það verður því mikið um grín, glens og spaug í söfnunarútsendingunni á Stöð 2 sem hefst klukkan 19.20 og stendur til miðnættis. Um leið fá áhorfendur að kynnast aðstæðum barna í fátækari löndum heims og rétta fram hjálparhönd með því að gerast reglulegir styrktaraðilar eða svo kallaðir heimsforeldrar.

Rauðu trúðanefin hafa að undanförnu verið seld á 800 kr. til styrktar verkefnum UNICEF. Nefin fást í verslunum Bónuss og Hagkaups um land allt, Kjarval-Klaustri og í sérverslunum Te & kaffi. Sem dæmi getur UNICEF bólusett 40 börn gegn mislingum fyrir andvirði eins nefs og varið þau þannig gegn þessum lífshættulega sjúkdómi.

Klippir með rautt nef í allan dag
Á fjölda vinnustaða um land allt hefur starfsfólk tekið sig saman og keypt nef og ætlar að gera sér glaðan dag. Alls kyns áskoranir eru í gangi og má meðal annars nefna að á  hárgreiðslustofunni Rauðhettu og úlfinum hefur einn starfsmaður tekið áskorun vinnufélaga sinna um að klippa með rautt nef í allan dag. Þátttakendur í árlegu aðventuhlaupi Björgunarmiðstöðvarinnar Skógarhlíð fá rauð nef í stað þátttökupenings o.s.frv. Frekari upplýsingar um vinnustaðagrín og glens fást hjá skrifstofu UNICEF á Íslandi.

Fjöldi listafólks gefur vinnu sína
Meðal þeirra fjölmörgu listamanna og hópa sem hafa lagt sitt að mörkum til að gera dag rauða nefsins sem eftirminnilegastan má nefna Þorstein Guðmundsson, Helgu Brögu, Jón Gnarr, Sigurjón Kjartansson, Kötlu Margréti, Þorstein Bachman, Hilmi Snæ, Ilmi Kristjánsdóttur, Björn Thors, Unni Ösp Stefánsdóttur, Vigdísi Gunnarsdóttur, Björn Hlyn Haraldsson, Guðmund Ólafsson, Sigrúnu Eddu Björnsdóttur, trúðatæknana Halldóru Geirharðsdóttur og Berg Þór Ingólfsson, Peter Anderson, norðlensku hljómsveitina Ljótu hálfvitana, uppistandarana í Mið-Íslandi og Sigtið, þá Gunnar Hansson, Ragnar Hansson, Friðrik Friðriksson og Halldór Gylfason. Allt listafólkið gefur vinnu sína.