Vissir þú að...

í dag eru 250.000 börn þvinguð til vopnaðra átaka. UNICEF beitir áhrifum sínum til að frelsa börn undan vopnuðum átökum og aðlaga þau samfélaginu að nýju.

Þú ert hér:  

Trúðakennsla á Youtube í tilefni dags rauða nefsins

Landsins þekktustu trúðatæknar, leikararnir Halldóra Geirharðsdóttir og Bergur Þór Ingólfsson, hafa búið til fimm myndbönd þar sem er farið yfir nokkur grunnatriði trúðalistarinnar.  Myndböndin er hægt að nálgast á vefsíðunni Youtube. Markmiðið er að gera sem flestum Íslendingum kleift að rækta sinn innri trúð en tilefnið er dagur rauða nefsins, söfnunarátak sem UNICEF og skari listafólks stendur fyrir.

Boðskapur trúðatæknanna Halldóru og Bergs er að allir geti verið trúðar. Í kennslumyndböndunum er einfaldlega farið yfir þær einföldu reglur sem trúðar þurfa að hafa í huga en vert er að árétta að það ríkir óskorðað trúðfrelsi á Íslandi og er hverjum frjálst að trúðast með sínu nefi.

Með því að kaupa rautt trúðanef í verslunum um land allt er hægt að styrkja starf samtakanna í þágu bágstaddra barna um allan heim. Fjöldi fólks hefur á undanförnum dögum fjárfest í nýju nefi og á yfir þrjú hundruð vinnustöðum hefur starfsfólk tekið sig saman, keypt rauð nef og ætlar að gera sér glaðan dag á föstudaginn. Myndböndin munu því svo sannarlega koma í góðar þarfir og vera mikilvægt hjálpartæki svo að fólk geti nýtt nefin sem best.

Markmið dags rauða nefsins er beita gríni og glensi til að koma alvarlegri skilaboðum á framfæri og hvetja fólk til að gerast stuðningsaðilar Barnahjálpar Sameinuðu þjóðanna (UNICEF).

Sem fyrr segir er umrædd myndbönd að finna á Youtube: Hér, hér, hér, hér og hér.

Kennslumyndböndin má einnig nálgast á Facebook-síðu dags rauða nefsins þar sem um 2.000 manns eru nú þegar skráðir aðdáendur. Á síðunni er að finna mikið af öðru áhugaverðu efni svo sem frá degi rauða nefsins 2006 og Red Nose Day í Bretlandi. Einnig má þar nálgast lag Ljótu hálfvitanna, „Hætt‘essu væli“.