UNICEF er sjálfstæð stofnun innan Sameinuðu þjóðanna og sem slík er hún ekki á föstum framlögum frá Sameinuðu þjóðunum.
Þú ert hér:
Árangur af Degi rauða nefsins, söfnunarátaki UNICEF, var framar björtustu vonum. Söfnuðust vel yfir 150 milljónir og yfir 2000 einstaklingar gengu í lið heimsforeldra. Einnig seldust yfir 5000 trúðanef, og mýmargir notuðu þau til þess að gleðja samferðafólk sitt!
UNICEF vill nýta tækifærið og þakka þeim fjölda fólks sem kom að því að gera Dag rauða nefsins að veruleika, þar á meðal leikurum, listamönnum, kvikmyndatökufólki og starfsfólki Saga Film, starfsfólki Vodafone, sjálfboðaliðum, starfsfólki Datamarket og svo mætti lengi telja.