Vissir þú að...

á árinu 2006 keypti UNICEF nærri 25 milljónir moskító-flugnaneta eða 40% af heildarframleiðslu þeirra á heimsvísu. Flugnanetið kemur í veg fyrir malaríu, en 1 af hverjum 5 dauðsföllum í Afríku má rekja til malaríu.

Þú ert hér:  

Fréttaritaraþjálfun unga fólksins á Egilsstöðum

Fréttaritaraþjálfun unga fólksins, sem miðar að því að hvetja ungt fólk til þátttöku og virkni í samfélaginu, verður haldin á Egilsstöðum dagana 16.-18. apríl næstkomandi. Verkefnið er í samstarfi við Ríkisútvarpið og Morgunblaðið og fá þátttakendur efni birt eða útvarpað í þeim miðlum. Gert er ráð fyrir að þjálfunin standi yfir á fimmtudegi og föstudegi frá kl. 17 til 20, og laugardegi kl. 11 til 13. Á laugardegi verður unnið alfarið á svæðisstöð Ríkisútvarpsins á Austurlandi.

Fréttaritaraþjálfun unga fólksins er öllum ungmennum í 8.-10. bekk opin. Sækja um hér.

Enn er rúm fyrir fleiri þátttakendur og því hvetjum við alla áhugasama um að sækja um sem fyrst. Nánar má lesa um verkefnið á www.unicef.is/frettaritari.

UNICEF hefur þegar útskrifað unga fréttaritara frá Ísafirði og Reykjavík með góðum árangri.