Vissir þú að...

UNICEF treystir því eingöngu á frjáls framlög einstaklinga, fyrirtækja, félagasamtaka og ríkisstjórna.

Þú ert hér:  

Fréttaritaraþjálfun unga fólksins lokið

Fréttaritaraþjálfun unga fólksins er nú lokið, en hún fór fram á Ísafirði, Egilsstöðum og í Reykjavík. Verkefnið var unnið af UNICEF í samstarfi við Ríkisútvarpið og Morgunblaðið. Haldnar voru þriggja daga vinnusmiðjur þar sem ungt fólk lærði að vinna í fjölmiðlum og búa til fréttir og annað efni sem svo var birt eða flutt í viðkomandi samstarfsmiðlum.

Alls luku 45 ungmenni á aldrinum 12-16 ára fréttaritaraþjálfun unga fólksins. Samkvæmt athugasemdum þátttakenda tókst vel til og helst þótti námskeiðið of stutt. Það er því aldrei að vita nema leikurinn verði endurtekinn í framtíðinni.

UNICEF þakkar öllum þáttakendum kærlega fyrir vel unnin störf. Morgunblaðið og RÚV eiga einnig hrós skilið fyrir að taka þátt í samstarfi sem þessu og fyrir að láta raddir barna heyrast í sinum miðlum. Flugfélag Íslands veitti afslátt af flugmiðum fyrir þjálfara út á land og færum við þeim bestu þakkir fyrir það. Auk þess styrkti Ísafjarðarbær þjálfunina þar á bæ um 30 þúsund krónur og lagði til húsnæði við þjálfun sem gerði okkur kleift að standa undir öllum kostnaði. Húsnæðið á Egilsstöðum var UNICEF einnig að kostnaðarlausu.

Hér verður hægt að nálgast það efni sem ungmennin bjuggu til á fréttaritaraþjálfuninni.