árið 2009 dreifði UNICEF svokölluðum skólapökkum til 3.832.000 barna í 54 löndum. Skólapakkarnir eru sérstaklega hannaðir fyrir neyðarsvæði eða þar sem mjög vanbúinn skóli er fyrir.
Þú ert hér:
Fréttaritaraþjálfun unga fólksins verður haldin í Reykjavík dagana 26.-28. mars á skrifstofu UNICEF að Laugavegi 42. Verkefnið er í samstarfi við Ríkisútvarpið og Morgunblaðið og fá þátttakendur efni birt eða útvarpað í þeim miðlum. Gert er ráð fyrir fimmtudegi og föstudegi frá kl. 17 til 20, og laugardegi kl. 11 til 13.
Enn er rúm fyrir fleiri þátttakendur og því hvetjum við alla áhugasama um að sækja um sem fyrst. Nánar á www.unicef.is/frettaritari_umsokn. Verkefnið miðar að því að hvetja ungt fólk til þátttöku og virkni í samfélaginu.