UNICEF treystir því eingöngu á frjáls framlög einstaklinga, fyrirtækja, félagasamtaka og ríkisstjórna.
Þú ert hér:
UNICEF óskar landsmönnum gleðilegra jóla og farsældar á nýju ári. Fjölmargir hafa komið að starfinu með einum eða öðrum hætti á árinu sem er að líða. Fyrir hönd þeirra barna sem njóta góðs af stuðningi heimsforeldra og annarra styrktaraðila færum við ykkur kærar þakkir.
Fyrir þá sem eiga eftir að kaupa jólagjafirnar bendum við á að jólabúð UNICEF verður opin á Þorláksmessu til klukkan 18.00. Í búðinni er úrval leikfanga og annarra gjafavara, að ógleymdri jólakúlunni og látúnsskrautinu sem vinsælt er sem jólagjöf til þeirra sem eiga allt!