í dag eru 250.000 börn þvinguð til vopnaðra átaka. UNICEF beitir áhrifum sínum til að frelsa börn undan vopnuðum átökum og aðlaga þau samfélaginu að nýju.
Þú ert hér:
Alþjóðlegi handþvottardagurinn var haldinn hátíðlegur í annað skiptið í síðustu viku. Markmið dagsins er að vekja athygli á því að handþvottur með sápu og vatni er ein albesta og ódýrasta forvörnin sem völ er á gegn fjölmörgum sjúkdómum.
Á hverju ári deyja yfir 3,5 milljónir barna undir fimm ára aldri vegna niðurgangssjúkdóma og sýkinga í öndunarfærum. Að þvo hendurnar með sápu, sérstaklega í mikilvægum aðstæðum, svo sem eftir klósettferðir og áður en eldað eða borðað er, getur dregið úr tíðni niðurgangssjúkdóma um meira en 40% og tíðni sýkinga í öndunarfærum um næstum 25%. Að auki er nú mikil áhersla lögð á sápuhandþvott sem mikilvæga forvörn gegn inflúensunni H1N1, sem gjarnan er nefnd svínaflensan.
Mikilvægt að auka tíðni handþvottar
Þrátt fyrir ótvíræða kosti er sápuhandþvotti hins vegar mjög oft ábótavant. Sápa er til staðar á flestum heimilum jarðarbúa en engu að síður er talið að tíðni sápuhandþvotttar í hinum mikilvægu aðstæðum sé frá 0 til 34%. Til að ná varanlegum árangri á þessu sviði, og gera handþvott að sjálfsögðum hlut, er nauðsynlegt að skilja hvað hvetur fólk til að breyta venjum sínum í hverju samfélagi fyrir sig.
Mengað vatn og ófullnægjandi hreinlæti eru gjarnan aðalorsökin fyrir fjarveru frá vinnu og skóla. Hvoru tveggja getur viðhaldið efnahagslegri og félagslegri stöðnun samfélaga. Fjárfesting í heilusgæslu, lífsafkomu og þroska yngstu barnanna, menntun og vatni getur verið til lítils ef það er ekki nógu mikil áhersla á handþvott með sápu.
Börn eru boðberar breytinga
Yfirskrift alþjólega handþvottardagsins í ár var „Hreinar hendur bjarga lífum“. Sérstök áhersla er lögð á að hvetja börn á skólaaldri til að vera boðbera breytinga. Mikilvægt er að börnin læri í skólanum um mikilvægi handþvottar og taki þann góða sið með sér inn á heimilið og í samfélagið.
Um 200 milljónir barna, í 86 löndum, löðruðu hendur sínar á síðasta ári í tilefni af handþvottardeginum. Í ár bættust milljónir í hópinn; börn, kennarar, foreldrar, frægt fólk og fulltrúar stjórnvalda.