Vissir þú að...

UNICEF er sjálfstæð stofnun innan Sameinuðu þjóðanna og sem slík er hún ekki á föstum framlögum frá Sameinuðu þjóðunum.

Þú ert hér:  

Hönnuðu boli til styrktar UNICEF

Sjö ungmenni tóku sig til á dögunum og hönnuðu boli til styrktar UNICEF. Innblástur hönnunarinnar sóttu þau til þriggja af greinum Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna; um réttinn til nafns, vernd gegn kynferðislegu ofbeldi og vernd gegn þátttöku í stríði. Er óhætt að segja að mjög vel hafi tekist til hjá þessum ungu og upprennandi hönnuðum.

Bolina seldu þau á sumardaginn fyrsta á Miklatúni, en þar fór fram sérstakur viðburðardagur á vegum frístundasmiðstöðvarinnar Kamps þar sem börn og unglingar leystu margvíslegar þrautir, sömuleiðis til styrktar UNICEF. Sjömenningarnir eru nemendur í Austurbæjarskóla, Háteigsskóla og Hlíðaskóla og því er Kampur einmitt þeirra frístundamiðstöð.

Á föstudaginn kom hópurinn í heimsókn á skrifstofu UNICEF á Íslandi og færði framkvæmdastjóranum, Stefáni Inga Stefánssyni, söfnunarféð; alls 29.000 krónur. Að auki fékk skrifstofan þrjá flotta boli. Fyrir hönd þeirra barna sem njóta góðs af framtakinu þakkar UNICEF á Íslandi hópnum kærlega fyrir og fagnar því jafnframt að ungt fólk skuli kynna sér hinn mikilvæga Barnasáttmála og miðli inntaki hans til annarra með svo skemmtilegum hætti.