UNICEF er á svæðinu fyrir, á meðan og eftir að neyð skellur á. Sem heimsforeldri ert þú með okkur allan tímann.
Þú ert hér:
Starfsfólk frá UNICEF vinnur nú hörðum höndum að því að bregðast við neyðarástandinu í Indónesíu eftir að snarpur jarðskjálfti reið yfir landið á miðvikudaginn. Talið er að allt að þriðjungur þeirra sem þurfa hjálp séu börn.
„Börnin eru berskjölduð gegn mögulegri útbreiðslu farsótta. Þau þurfa skjól og sálrænan stuðning eftir að hafa gengið í gegnum þessa erfiðu reynslu og það þarf að sjá til þess að menntun þeirra verði fyrir sem minnstri röskun og tryggja þannig að lífið komist í eins fastar skorður og unnt er sem fyrst,“ sagði yfirmaður UNICEF í Indónesíu, Angela Kearney, í gær.
UNICEF vinnur með indónesískum stjórnvöldum og öðrum stofnunum Sameinuðu þjóðanna að því að veita allt að 50.000 fjölskyldum neyðaraðstoð. Aðstoðin felur m.a. í sér að tryggja aðgang að öruggu drykkjarvatni, koma í veg fyrir útbreiðslu farsótta, sjá börnum fyrir vernd og öruggu skjóli og koma upp 250 skólatjöldum.
Um 500 manns hafa verið staðfestir látnir en mörg þúsund manns eru enn fastir í rústum bygginga. Auk þess hafa tugir þúsunda neyðst til að yfirgefa heimili sín.