Vissir þú að...

þegar neyð skellur á getur UNICEF brugðist við á innan við 24 klukkustundum.

Þú ert hér:  

Ungmenni ræða stöðu barna á J8-fundinum

Ungt fólk víðsvegar að úr heiminum er nú saman komið í Róm þar sem hinn svokallaði J8-fundur (e. Junior 8 Summit) fer nú fram í fjórða sinn. Um er að ræða vettvang fyrir ungmenni sem undanfarna viku hafa rætt hvernig bæta megi aðstæður barna í heiminum. Í dag, 9. júlí, munu svo fulltrúar hópsins kynna niðurstöður fundarins fyrir þjóðarleiðtogum þeirra átta ríkja sem eiga sæti á G8-fundinum sem einnig fer fram í Róm.

54 ungmenni á aldrinum 14-17 ára sitja J8 fundinn. Flest eru þau frá G8-löndunum: Bandaríkjunum, Bretlandi, Frakklandi, Ítalíu, Japan, Kanada, Rússlandi og Þýskalandi, en einnig eru fulltrúar frá Brasilíu, Egyptalandi, Indlandi, Kína, Mexíkó og Suður-Afríku.

Þátttakendurnir hafa eytt mestum tíma í að ræða loftlagsbreytingar, þróunarmál tengd Afríku, efnahagskreppuna og menntamál.

Mikið er í húfi því milljónir barna undir fimm ára aldri deyja árlega úr sjúkdómum sem koma má í veg fyrir með tiltölulega einföldum aðgerðum.

Og þátttakendur fundarins hugsa stórt: „Ef mannkynið gat komið manni til tunglsins þá hlýtur það að vera fært um að leysa þau mannúðarvandamál sem við stöndum frammi fyrir,“ sagði hinn 15 ára Daniel Morales frá Bandaríkjunum.