Vissir þú að...

þegar neyð skellur á getur UNICEF brugðist við á innan við 24 klukkustundum.

Þú ert hér:  

UNICEF hefur áhyggjur af flóttabörnum í Jemen

UNICEF hefur miklar áhyggjur af þróun mála í norðurhluta Jemen. Talið er að um 150.000 manns séu á vergangi vegna átaka sem þar hafa brotist út og að a.m.k. 60% þeirra séu börn. Vegna átakanna er fjöldi flóttafólks utan seilingar mannúðarsamtaka.

„Átökin hafa haft alvarleg áhrif á börn og þau munu líða fyrir afleiðingar þeirra um ókomin ár,“ er haft eftir Aboudou Karimou Adjibade, yfirmanni UNICEF í Jemen. „Hið alþjóðlega samfélag verður að taka höndum saman til að hjálpa öllum þessum börnum, sem hafa takmarkaðan eða engan aðgang að mat, heilsugæslu, menntun og skjóli.“

UNICEF hefur kallað eftir 6,1 milljón bandaríkjadala til að mæta þörfum kvenna og barna í Jemen. Áætlað er að nærri helming þeirrar fjárhæðar – 3 milljónir  bandaríkjadala – þurfi til að tryggja að flóttafólk hafi aðgang að heilnæmu vatni og koma í veg fyrir útbreiðslu sjúkdóma sem eru fylgifiskur ófullnægjandi hreinlætis.

Vannæring útbreitt vandamál
UNICEF mun einnig þurfa að bregðast við vannæringu í hópi flóttabarna og barna sem fyrir búa í þeim samfélögum sem flóttafólk streymir nú til. Allt að 250.000 börn munu njóta góðs af aðgerðum UNICEF á þessu sviði, þ. á m. 75.000 börn undir fimm ára aldri.

Þá er talið að fjöldi barna meðal flóttafólks sem er á skólaaldri sé um 55.000. Til að tryggja að skólaganga þessarra barna verði ekki fyrir meiri röskun en nú þegar er orðið mun UNICEF setja upp óformleg kennsluskýli, dreifa skólagögnum og þjálfa kennara.

Meðal annarra aðgerða sem UNICEF áætlar að ráðast í á næstu fjórum mánuðum er:
•    að vernda börn sem orðið hafa aðskila við foreldra sína
•    að útvega flóttabörnum sálfræðilegan stuðning
•    að auka meðvitund um þær ógnir sem steðja að börnum í neyðaraðstæðum
•    að efla fæðingarskráningu barna foreldra á flótta