UNICEF er á svæðinu fyrir, á meðan og eftir að neyð skellur á. Sem heimsforeldri ert þú með okkur allan tímann.
Þú ert hér:
Jólabúð UNICEF opnaði í dag, mánudaginn 2. nóvember, að Laugavegi 42, 2. hæð. Í búðinni er hægt að nálgast úrval fallegra jólakorta, vandaðrar gjafavöru og skemmtilegra leikfanga. Jólakort UNICEF hafa verið seld á Íslandi í hálfa öld og hefur salan löngum verið mikilvægur liður í fjáröflun okkar.
Opnunin markar upphafið af skemmtilegum tíma þar sem fjöldi fólks leggur leið sína á Laugaveginn í þeim tilgangi að gleðja vini og vandamenn og styrkja starf UNICEF um leið.
Hægt er að skoða jólabækling okkar hér.
Við mælum sérstaklega með því að þeir sem hyggjast kaupa jólakúluna og látúnsskrautið í ár hugi að því í tíma þar sem hvoru tveggja hefur selst upp undanfarin ár.
Búðin verður opin alla virka daga fram að jólum, milli klukkan 12 og 18, auk þess sem opið er á laugardögum í desember.
Til að panta kort og gjafavöru skal senda tölvupóst á kort@unicef.is eða hringja í síma 552 6300. Tekið er við pöntunum frá og með 2. nóvember. Pantanir eru afgreiddar í póst að hámarki þremur virkum dögum eftir að þær berast. Burðargjöld greiðast af viðtakanda.