þegar neyð skellur á getur UNICEF brugðist við á innan við 24 klukkustundum.
Þú ert hér:
Fjölmörg íslensk fyrirtæki munu á næstu dögum fá símtal og vera boðið að kaupa gæðakaffi frá Te & Kaffi og styrkja UNICEF í leiðinni. Um er að ræða kaffitegundina Fazenda da Lagoa frá Brasilíu og rennur 20% af söluandvirði þess til UNICEF. Búskaparstefna framleiðanda Fazenda da Lagoa gengur út á stuðning við bændur, jafnt með samfélagslegum verkefnum sem og stuðningi við kaffirækt þeirra.
Verkefni sem þetta skiptir starf UNICEF miklu máli þar sem samtökin treysta eingöngu á frjáls framlög einstaklinga, fyrirtækja og ríkisstjórna. Verkefnið er UNICEF auk þess að kostnaðarlausu.
Þetta er í annað sinn sem UNICEF og Te & Kaffi standa fyrir kaffisölu til fyrirtækja. Í ágúst og september í fyrra söfnuðust hátt í tvær milljónir til verkefna UNICEF í þágu bágstaddra barna. Það er frábær árangur sem við erum þakklát fyrir og vonum við að fyrirtæki landsins taki jafn vel í framtakið núna.
Framkvæmdaaðili símasölunnar er Miðlun ehf. Áhugasamir vinsamlegast hringi í síma 580 8080.