Vissir þú að...

á árinu 2006 keypti UNICEF nærri 25 milljónir moskító-flugnaneta eða 40% af heildarframleiðslu þeirra á heimsvísu. Flugnanetið kemur í veg fyrir malaríu, en 1 af hverjum 5 dauðsföllum í Afríku má rekja til malaríu.

Þú ert hér:  

Dregur úr tíðni barnadauða

UNICEF birti í gær nýjar niðurstöður sem sýna að dánartíðni barna undir fimm ára aldri hélt áfram að lækka á árinu 2008. Samkvæmt niðurstöðunum hefur barnadauði dregist saman um 28% á árabilinu 1990 til 2008; úr 90 dauðsföllum á hverjar 1000 fæðingar í 65. Þetta þýðir að heildarfjöldi barna undir fimm ára aldri sem lést árið 2008 var 8,8 milljónir samanborið við 12,5 milljónir árið 1990. Árið 1990 er viðmiðunarár fyrir hin svokölluðu þúsaldarmarkmið Sameinuðu þjóðanna.

„Sé miðað við árið 1990 deyja nú 10.000 færri börn á hverjum degi,“ sagði framkvæmdastjóri  UNICEF, Ann M. Veneman. „Þó mikill árangur hafi náðst er óásættanlegt að á hverju ári deyi 8,8 milljónir barna fyrir fimm ára afmælið sitt.“

Niðurstöðurnar eru afrakstur mikils rannsóknarstarfs og gagnasöfnunar sérfræðinga á vegum UNICEF, Alþjóðaheilbrigðisstofnunarinnar (WHO), Alþjóðabankans og Mannfjöldastofnun Sameinuðu þjóðanna, í samvinnu við fjölda háskóla.

Sé nánar rýnt í upplýsingarnar sést að á undanförnum tveimur áratugum hefur jafnt og þétt dregið úr tíðni barnadauða (undir fimm ára). Einnig kemur í ljós að lækkunin hefur hlutfallslega orðið sífellt meiri með árunum; meðaltalslækkunin frá 2000 til 2008 er 2,3 prósent, samanborið við 1,4 prósent frá 1990 til 2000.

Augljós tengls milli sértækra aðgerða og lækkandi barnadauða
Lýðheilsusérfræðingar segja að lækkunina megi að stórum hluta þakka nokkrum lykilinngripum á borð við bólusetningar, m.a. gegn mislingum, aukinni dreifingu moskítóneta, til að koma í veg fyrir malaríusmit, og A-vítamíngjöf. Tengslin milli inngripa af þessu tagi og lækkandi barnadauða eru augljós.

Árangur hefur náðst í öllum heimshlutum, einnig í sumum af fátækustu löndunum. Jákvætt dæmi er Malaví sem skipar sér meðal þeirra tíu landa heims þar sem tíðni barnadauði er hæst. Malaví er nú á góðri leið með að ná þúsaldarmarkmiðinu um að draga úr ungbarnadauða um 2/3 á tímabilinu 1990 til 2015.

Tíðni barnadauða í Malaví hefur minnkað úr 225 dauðsföllum á hverjar 1000 fæðingar árið 1990 í 100 dauðsföll árið 2008. Árið 2000 sváfu aðeins 3 prósent malavískra barna undir fimm ára aldri undir moskítóneti en 25% árið 2006.

Niðurstöðurnar sýna einnig að sjö af þeim 67 löndum þar sem tíðni barnadauða er 4% eða hærri hafa náð að fækka dauðsföllum á hverju ári um 4,5% eða meira. Þessi lönd eru Nepal, Bangladess, Erítrea, Laos, Mongólía, Bólivía og Malaví.

40% allra dauðfalla barna undir fimm ára í þremur löndum
Af öllum dauðsföllum barna undir fimm ára aldri í þróunarlöndunum eru 93% í Afríku og Asíu.
„Nokkur lönd með mikinn fjöld íbúa bera stóran hluta birðarinnar. 40% allra dauðsfalla barna undir fimm ára aldri eru í aðeins þremur löndum: Indlandi, Nígeríu og Austur-Kongó,“ sagði Veneman. „Ef ekki tekst að draga verulega úr dauðföllum í þessum löndum munum við aldrei ná þúsaldamarkmiðunum.“

Í sumum löndum er framförin hæg eða jafnvel engin. Í Suður-Afríku hefur dánartíðni barna undir fimm ára aldri til að mynda hækkað frá 1990. Heilsa barna og heilsa mæðra er tengd órjúfaböndum. Af öllum löndum heims eru flestar konur smitaðar af HIV í Suður-Afríku. Vonir eru bundnar við að nýlegar yfirlýsingar þarlendra stjórnvalda, um að ráðast í umfangsmiklar aðgerðir til að koma í veg fyrir HIV-smit frá móður til barns við fæðingu, muni bæta ástandið.

Vonir bundnar við ný inngrip
Tvær af aðalorsökum barnadauða eru lungnabólga og niðurgangur. Nýjar aðferðir, svo sem bólusetning gegn algengum orsökum lungnabólgu (pneumococcal pneumonia) og niðurgangs (rotaviral diarrhea), gætu skilað talsverðum árangri.

„Að ná því þúsaldarmarkmiði að draga úr dánartíðni barna undir fimm ára aldri um 2/3 fyrir árið 2015 krefst brýnna og markvissra aðgerða,“ sagði Veneman.