Vissir þú að...

93 milljónir barna hafa ekki tækifæri til að ganga í skóla – meirihluti þeirra eru stúlkur.

Þú ert hér:  

Átak gegn barnadauða af völdum lungnabólgu

Fjórða hvert barn sem lætur lífið fyrir fimm ára aldur deyr af völdum lungnabólgu. Það gerir um tvær milljónir barna á þessum aldri á hverju ári. Enginn annar sjúkdómur á jafnstóran þátt í barnadauða og lungnabólga en á fimmtán sekúndna fresti deyr barn af hans völdum.

Síðastliðinn mánudag - á alþjóðlegum degi lungnabólgu - ýttu Alþjóðaheilbrigðisstofnunin (WHO) og UNICEF úr vör átaki sem ætlað er að draga stórlega úr dauðsföllum barna af völdum sjúkdómsins. Lykilþættir í átakinu eru betri næring og aðgengi að bóluefni.

Fulltrúar samtakanna segja að þekking á því hvernig megi afstýra barnadauða af völdum lungnabólgu sé til staðar og að tækin séu fyrir hendi. Það þurfi einfaldlega að nýta þau.