Málþing: Þrælkun eða þroskandi vinna?
Laugardaginn 9. maí nk. kl. 10-13 verður haldið málþing í Þjóðminjasafni Íslands um vinnu barna. Málþingið er haldið á vegum Þjóðminjasafnsins og UNICEF á Íslandi í tengslum við sýninguna Þrælkun, þroski, þrá? sem nú stendur yfir í safninu.
Umrædd sýning fjallar um börn við vinnu á sjó og í landi. Hún vekur upp spurningar um vinnumenningu og barnauppeldi á Íslandi á 20. öld. Á sýningunni eru ljósmyndir af ungum börnum við fiskvinnu á árunum 1930-1950. Ljósmyndirnar vekja upp spurningar er varða viðhorf til barnavinnu, aðbúnað og vinnuskilyrði barna og samskipti sjómanna og barna.
Frummælendur eru Stefán Stefánsson framkvæmdastjóri UNICEF, Guðrún Þórsdóttir skólastjóri Vinnuskóla Reykjavíkur, Ágúst Georgsson þjóðháttafræðingur og Sigrún Sigurðardóttir menningarfræðingur. Margrét Hallgrímsdóttir þjóðminjavörður stýrir pallborðsumræðum.
Dagskrá málþingsins má nálgast hér. Aðgangur er ókeypis og eru allir velkomnir!