126 milljónir barna stunda lífshættulega vinnu. Vertu með okkur í liði til að breyta þessu.
Þú ert hér:
Alþjóðlegur dagur Sameinuðu þjóðanna án ofbeldis (e. Day of Nonviolence) er haldinn hátíðlegur um allan heim í dag. Af þessu tilefni mun fjöldi samtaka standa fyrir myndun mannlegs friðarmerkis á Klambratúni klukkan 20 í kvöld. Einnig verður einnar mínútu þögn í mörgum grunnskólum landisns um morguninn.
Svokölluð heimsganga hefst frá Nýja-Sjálandi í dag og mun fara um heiminn þveran og endilangan uns henni lýkur í Argentínu 2. janúar 2010.
Það er skipulagshópur Heimsgöngunnar, ásamt Rauða krossinum, Sambandi íslenskra framhaldsskólanema, Samtökum hernaðarandstæðinga, Öryrkjabandalaginu og fleiri fjöldasamtökum, sem standa að gjörningnum á Klambratúni. Hægt er að hafa samband á www.daguranofbeldis.info til að fá blys á 500 krónur.
Dagur án ofbeldis fer saman við fæðingardag indverska friðarleiðtogans Mahatma Gandhi.