Vissir þú að...

árið 2009 dreifði UNICEF svokölluðum skólapökkum til 3.832.000 barna í 54 löndum. Skólapakkarnir eru sérstaklega hannaðir fyrir neyðarsvæði eða þar sem mjög vanbúinn skóli er fyrir.

Þú ert hér:  

Dauðsföllum vegna mislinga fækkar á heimsvísu

Dauðsföllum af völdum mislinga í heiminum fækkaði úr 733 þúsundum árið 2000 í 164 þúsund í fyrra, eða um 78% á tímabilinu. Árið 2001 ýttu fjölmörg hjálparsamtök og stofnanir, þ.á m. UNICEF, úr vör átaki undir heitinu „The Measles Initiative“ með það að takmarki að fækka dauðföllum af völdum mislinga um 90% fyrir árið 2010 miðað við árið 2000. Hefur þeim árangri þegar verið náð alls staðar nema í Suðaustur-Asíu einum heimshluta.

Á síðustu árum hafa 700 milljónir barna verið bólusettar gegn mislingum og er talið að þær aðgerðir hafi komið í veg fyrir dauða 4,3 milljóna barna. Engu síður deyja enn 450 börn daglega af völdum mislinga og vara samtökin sem standa að „The Measles Initiative“ við því að dauðsföllum af völdum sjúkdómsins kunni að fjölga á nýjan leik ef slakað er á bólusetningu.