Moskítónet koma í veg fyrir dauða þúsunda barna
Moskítóflugan, sem ber malaríu í menn, er hættulegasta dýr Afríku. Um það bil milljón manns deyja árlega af völdum sjúkdómsins og milli 190 og 330 milljónir smitast. Um 90% tilfella koma upp sunnan Sahara-eyðumerkurinnar, í fátækustu löndum heimsins.
Ný rannsókn sem framkvæmd var í tíu löndum á svæðinu leiðir í ljós að öflugasta vopnið gegn malaríu eru moskítónet. Að minnsta kosti 125.000 börn undir fimma ára aldri eiga slíkum netum líf sitt að launa.
Ef sú tölfræði er heimfærð upp á allan heiminn hafa moskítónet bjargað enn fleiri lífum.
Besta forvörnin gegn malaríu er einfaldlega að koma í veg fyrir stungu malaríumoskítóflugunnar. UNICEF leggur því mikla áherslu á að dreifa moskítónetum til barnafjölskyldna og tryggja að fjölskyldan skilji mikilvægi þess að sofa undir netinu. Netið er strengt yfir rúm fjölskyldunnar og kemur í veg fyrir að moskítóflugan stingi börnin um nóttina, þegar hún er skæðust.
Í dag er UNICEF stærsti kaupandi og dreifingaraðili moskítóneta.
Framtíð án malaríu
Um 100 milljónir neta eru framleiddar á ársgrundvelli í dag samanborið við 30 milljónir árið 2004. Alþjóðasamfélagið hefur að undanförnu sýnt vaxandi vilja til að fjárfesta í framtíð án malaríu. Árið 2004 námu framlög til baráttunnar gegn malaríu um 250 milljónum bandaríkjadala en 700 milljónum árið 2007. UNICEF áætlar að á árinu 2008 hafi framlög numið 1,1 milljarði bandaríkjadala.
Því fleiri netum sem er dreift því fleiri lífum er hægt að bjarga.