Vissir þú að...

yfir 22.000 börn deyja á dag af orsökum sem einfalt og ódýrt er að koma í veg fyrir. Við trúum því að þessi tala geti verið núll. En þú?

Þú ert hér:  

Vaxandi neyð í norðvesturhluta Pakistan

©UNICEF/Marta RamonedaUNICEF hefur sent út ákall vegna átaka stjórnarhersins og uppreisnarmanna í norðvesturhluta Pakistan. Samtökin áætla að þau þurfi 41,4 milljón bandaríkjadali til að standa undir nauðsynlegri aðstoð við fólk á flótta undan átökunum. Yfir helmingur þeirra sem eru á vergangi eru börn.

Flóttafólki fjölgar dag frá degi. Talið er að um 2,5 milljónir manna hafi flúið heimili sín á síðustu vikum. Fólkið streymir inn í flóttamannabúðir og nærliggjandi samfélög. Það þarf nauðsynlega að fá vatn, klæði, matvæli, skjól, læknisþjónustu og vernd.

Búist er við að átökin breiðist út og að sífellt fleira fólk neyðist til að flýja heimili sín á komandi dögum.

Erfitt aðgengi, auk skorts á lífsnauðsynlegum hjálpargögnum og fjárstuðningi, hindrar hjálparstarf í þágu barna og kvenna á flótta. Margt af flóttafólkinu hefur enn ekki fengið neina aðstoð og aðeins 10% hafa fengið inni í flóttamannabúðum á vegum innlendra og alþjóðlegra hjálparstofnana.

Áætlað er að tugir þúsunda manna, kvenna og barna séu innlyksa á átakasvæðinu. Þetta fólk reynir að þrauka á ófullnægjandi birgðum af vatni og mat og með ófullnægjandi aðgang að læknisaðstoð.

Smellið hér til að leggja UNICEF lið vegna neyðarinnar í Pakistan.