Vissir þú að...

UNICEF er sjálfstæð stofnun innan Sameinuðu þjóðanna og sem slík er hún ekki á föstum framlögum frá Sameinuðu þjóðunum.

Þú ert hér:  

UNICEF til hjálpar 50.000 indónesískum fjölskyldum

UNICEF í Indónesíu rær nú öllum árum að því að koma börnum, sem urðu fyrir barðinu á öflugum jarðskjálfta þann 30. september sl., til hjálpar. Forgangaatriði samtakanna eru að tryggja ómengað drykkjarvatn, koma í veg fyrir útbreiðslu sjúkdóma, þjáfa heilsugæslustarfsfólk í að greina og bregðast  við vannæringu barna, koma upp bráðabirgðaskólastofum, dreifa skólagögnum og vernda börn fyrir ýmsum þeim hættum sem jafnan steðja að þeim í glundroða náttúruhamfara.

„Það er afar mikilvægt að börn og mæður þeirra fái sérstaka athygli í því hjálparstarfi sem framundan er,“ segir Angela Kearney, yfirmaður UNICEF í Indónesíu. „Börnin þurfa á sérstakri umönnun og vernd að halda og það er mikilvægt að líf þeirra haldi áfram, þrátt fyrir hina hræðilega lífsreynslu sem þau hafa gengið í gegnum.“

Samtökin áætla að koma a.m.k. 50.000 fjölskyldum til hjálpar með fyrstu neyðaraðgerðum sínum.