Vissir þú að...

á árinu 2006 keypti UNICEF nærri 25 milljónir moskító-flugnaneta eða 40% af heildarframleiðslu þeirra á heimsvísu. Flugnanetið kemur í veg fyrir malaríu, en 1 af hverjum 5 dauðsföllum í Afríku má rekja til malaríu.

Þú ert hér:  

Opinn fundur um kynferðisofbeldi í Austur-Kongó

Fimmtudaginn 1. október standa V-dagurinn á Íslandi og UNICEF fyrir opnum fundi um kynferðisofbeldi í Austur-Kongó. Fundurinn fer fram í húsakynnum UNICEF á Laugavegi 42 í Reykjavík milli klukkan 12.10 og 13.00.

Tilefni fundarins er sameiginlegt átak V-dagsins og UNICEF til að vekja athygli á kynferðisofbeldi í Austur-Kongó en umfang og eðli vandamálsins í landinu á sér fáar hliðstæður. Samtökin hafa undanfarna daga leitað eftir stuðningi frá almenningi á Íslandi við starf UNICEF í þágu þolenda nauðgana í Austur-Kongó. Verkefnið er hægt að styrkja hér.

Fundurinn er öllum opinn meðan húsrúm leyfir og er aðgangur ókeypis.

Dagskráin er eftirfarandi:
•    Diljá Ámundadóttir frá V-dagssamtökunum opnar fundinn.
•    Páll Ásgeir Davíðsson og Bergljót Arnalds, sem dvalið hafa í Austur-Kongó, fjalla um átökin sem sett hafa svip sinn á landið undanfarin rúman áratug.
•    Tasha Gill, sérfræðingur í barnavernd hjá UNICEF, og Simona Pari, hjá UN Action Against Sexual Violence, verða með erindi frá Austur-Kongó í gegnum fjarfundabúnað.