Vissir þú að...

93 milljónir barna hafa ekki tækifæri til að ganga í skóla – meirihluti þeirra eru stúlkur.

Þú ert hér:  

Milljón börn á flótta í Pakistan

© UNICEF/Marta RamonedaUNICEF hefur miklar áhyggjur af mörg þúsundum barna sem hafa hrakist frá heimilum sínum vegna átaka í Norðvestur-Pakistan á undanförnum vikum. Áætlað er að af tveimur milljónum flóttafólks sé um helmingurinn börn. Mörg þessara barna þurfa á bráðri læknisþjónustu að halda, þjást af næringarskorti, hafa takmarkaðan eða engan aðgang að öruggu drykkjarvatni eða viðunandi hreinlætisaðstöðu og eru berskjölduð gegn hvers kyns hættum öðrum. Miklir sumarhitar hafa svo bætt gráu ofan á svart.

Þá hefur UNICEF miklar áhyggjur af því að skólaárið byrjar hjá um 700.000 börnum í september. Um 3.700 skólar eru hins vegar óstarfhæfir þar sem 150.000 flótamenn hafast þar að. Ef ekki tekst að rýma og standsetja þessa skóla í tíma mun skólaganga barnanna verða fyrir mikilli röskun en því fylgir sú hætta að hópur barna hrekjist endanlega úr námi.

UNICEF vinnur náið með yfirvöldum í Pakistan og öðrum samstarfsaðilum að því að veita börnum og konum í hópi flóttafólks aðstoð. Til að koma í veg fyrir útbreiðslu sjúkdóma hafa yfir 200.000 börn verið bólusett gegn mislingum og 230.000 manns hafa fengið öruggt drykkjarvatn og fræðslu um hreinlæti. 47.400 börn og 20.400 mæður hafa verið skoðaðar vegna gruns um vannæringu.

Enn sem komið er hefur tekist að halda vannæringu í skefjum en vegna þess hve ástandið er viðkvæmt er þörf á stöðugu eftirliti og aðgerðum til að koma í veg fyrir að vandamálið breiðist ferkar út.

Þörf á auknum fjárstuðningi
UNICEF hefur áhyggjur af því að nægilegt fjármagn kunni að skorta til að standa undir nauðsynlegri aðtoð við flóttabörn næstu sex mánuðina. Fram til þessa dags hafa samtökin aðeins fengið um helming þess fés sem þau þurfa.

„Án fullnægjandi stuðnings munum við ekki geta tryggt þúsundum flóttabörnum og fjölskyldum þeirra þá nauðsynlegu þjónustu og stuðning sem þau þurfa á þessum erfiðu tímum,“ er haft eftir yfirmanni neyðarverkefna hjá UNICEF, Louis-Georges Arsenault.