Vissir þú að...

UNICEF eru algjörlega ópólitísk samtök og vinnur með stjórnvöldum, frjálsum félagasamtökum og fleiri aðilum í hverju landi fyrir sig í þeim tilgangi að tryggja réttindi allra barna.

Þú ert hér:  

UNICEF bregst við röð náttúruhamfara

Röð náttúrhamfara á undanförnum tíu dögum hefur haft gífurleg áhrif á milljónir manna í Asíu og á Kyrrahafinu. Frá 26. september hafa alls sex lönd orðið fyrir barðinu á flóðum, hvirfilvindi, flóðbylgju og jarðskjálftum. UNICEF vinnur nú hörðum höndum að því að bregðast við neyð barna í þessum löndum.

Á suðurhluta Filipseyja berst starfsfólk UNICEF gegn eyðileggingu skæðustu flóða sem gengið hafa yfir landið á undanförnum 40 árum. Neyðarteymi frá UNICEF eru einnig staðsett í norðurhluta landsins þar sem er óttast að jafnvel enn öflugri hitabeltisstormur skelli á með tilheyrandi rigningum.

Rigningarnar hafa einnig haft mikil áhrif í löndum eins og Víetnam, Laos og Kambódíu og vinna landsskrifstofur UNICEF í þessum löndum nú að því að meta áhrifin á börn og gera viðbragðsáætlanir.

Starfsfólk frá UNICEF er einnig að störfum í Indónesíu eftir að tveir snarpir jarðskjálftar skóku landið í síðustu viku. Þegar hafa dauðföll yfir sex hundruð manna verið staðfest en búist er við að sú tala eigi eftir að hækka umtalsvert þegar lík sem liggja í rústum hruninna bygginga koma í ljós. Jafnvel er óttast að fórnarlömbin verði fleiri en þegar jarðskjálftar gengu yfir landið árið 2006 með þeim afleiðingum að 5.000 manns létust. Tugir þúsunda gafa auk þess neyðst til að yfirgefa heimili sín.

Á Samóa-eyjunum er nú einnig neyðarástand eftir að flóðbylgjur skullu á eyjunum fyrir helgi. Þrátt fyrir að íbúafjöldi á eyjunum sé tiltölulega lítill eru börn þar berskjölduð fyrir öndunarfærasýkingum, mislingum og stífkrampa þar sem tíðni bólusetninga er lág í mörgum samfélaganna. Á sumum eyjanna hefur öll aðstaða til heilsugæslu eyðilagst og vatnsbirgðir mengast.

Forgangsatriði UNICEF er að útvega drykkjarhæft vatn og tryggja fullnægjandi hreinlætisaðstöðu í þeim samfélögum sem flóðbylgjurnar hafa haft mest áhrif á.

Á næstu dögum munu UNICEF og aðrar stofnanir Sameinuðu þjóðanna senda frá sér sameiginlegt neyðarkall þar sem áætluð fjárþörf vegna brýnustu hjálparaðgerðanna í löndunum sex verður m.a. metin.