Vissir þú að...

yfir 22.000 börn deyja á dag af orsökum sem einfalt og ódýrt er að koma í veg fyrir. Við trúum því að þessi tala geti verið núll. En þú?

Þú ert hér:  

Samantekt um breytta stöðu barna á Íslandi

UNICEF á Íslandi hefur að undanförnu haft samband við aðilar sem vinna að málefnum barna á Íslandi til að kanna hvort farið sé að gæta áhrifa efnahagsþrenginganna sem Ísland gengur nú í gegnum á börn.

Flestir þeirra aðila sem UNICEF hafði samband við voru sammála um að núverandi ástand væri farið að hafa áhrif á börn en merki þess eru þó í fæstum tilvikum afgerandi eða mælanleg. Í ljósi reynslunnar, og þá sérstaklega reynslu Finna sem gengu í gegnum mikla efnahagslægð á fyrrihluta tíunda áratugarins, má enda búast við því að áhrifa á börn fari ekki að gæta fyrr en fram líða stundir.

Í kölfarið hefur UNICEF gert samantekt um breyttar aðstæður barna á Ísland. Samantekt UNICEF má finna hér. Í samantektinni koma einnig fram nokkrar hugmyndir um viðbrögð við efnahagsástandinu og eins eru settir fram nokkrir umhugsunarpunktar. Telur UNICEF brýnt að tryggja að málefni barna verði í brennidepli á komandi misserum og eins að sjónarmið barna fái að njóta sín.

Þeir aðilar sem UNICEF talaði við voru Barnaverndarstofa, Börnin í borginni, Heilbrigðisráðuneytið, Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins, Heimili og skóli, Kvennaathvarfið, Landlæknir, Lýðheilsustöð, Menntamálaráðuneytið, Miðstöð heilsuverndar barna, Rauði kross Íslands, Ríkislögreglustjóraembættið, Stígamót, Stuðlar og Umboðsmaður barna. Að auki voru erlendar rannsóknir skoðaðar.

Fulltrúi UNICEF í vinnuhópi um málefni barna
Fulltrúi frá UNICEF á Íslandi hefur aðkomu að vinnuhóp um börn sem heyrir undir svo kallaða velferðarvakt félagsmálaráðuneytisins og hefur samantekt samtakanna verið deilt með vinnuhópnum.

Hlutverk velferðarvaktarinnar er að fylgjast með félagslegum jafnt sem fjárhagslegum afleiðingum bankahrunsins fyrir fjölskyldur og einstaklinga í landinu með markvissum hætti og gera tillögur um aðgerðir í þágu heimilanna. Velferðarvaktin hefur skipað sex vinnuhópa og hugar einn hópanna að málefnum barna upp að 18 ára aldri.