Vissir þú að...

UNICEF treystir því eingöngu á frjáls framlög einstaklinga, fyrirtækja, félagasamtaka og ríkisstjórna.

Þú ert hér:  

UNICEF kemur börnum á Samóa-eyjum aftur í skóla

UNICEF vinnur nú náið með menntayfirvöldum á Samóa-eyjum við að tryggja að þarlend börn geti haldið skólagöngu sinni áfram eins fljótt og auðið er. Öflug flóðbylgja gekk yfir eyjarnar þann 29. september síðastliðinn í kjölfarið af snörpum neðansjávarjarðskjálfta. Hamförunum fylgdi mikil eyðilegging og skemmdust m.a. fimm grunnskólar. Hefur það bein áhrif á um 1.100 börn sem þar stunda nám.

Á allra næstu dögum munu börnin sameinast jafnöldum sínum í grunnskólum nærliggjandi sveitafélaga. Er um að ræða aðgerðir sem eiga að tryggja að nám og þar með líf barnanna verði fyrir sem minnstri röskun.

Til að mæta þörfum barnanna á Samóa sér UNICEF m.a. um að útvega sérstök skólatjöld sem gagnast sem skólastofur, skólagögn og vatnstanka. UNICEF þjálfar einnig kennara svo þeir geti veitt nemendum sínum sálrænan stuðning í kjölfar hamfaranna.

„Skólaganga er mikilvægur þáttur í að koma lífi barnanna aftur í sem eðlilegastar skorður,“ segir Phuong T. Nguyen, sérfræðingur hjá UNICEF í menntun á neyðarsvæðum. „Börnin þurfa nauðsynlega á því að halda eftir að hafa orðið fyrir svona mikilli streituröskun. Skólinn er einnig öruggt umhverfi fyrir börn þar sem þau mynda tengsl við jafnaldra sína. Hvoru tveggja hjálpar þeim að komast yfir áfallið.“