126 milljónir barna stunda lífshættulega vinnu. Vertu með okkur í liði til að breyta þessu.
Þú ert hér:
Um 200 milljón börn í þróunarlöndunum, sem eru undir fimm ára aldri, þjást af vaxtaskerðingu vegna langvarandi vannæringar. Þetta er meðal þess sem kemur fram í skýrslunni Tracking Progress on Child and Maternal Nutrition sem UNICEF hefur gefið út.
Hægt er að lesa skýrsluna í heild sinni hér.
Myndbandsumfjöllun um skýrsluna má sjá hér.
Vannæring er undirrót rúmlega þriðjungs allra dauðsfalla barna undir fimm ára aldri. Það getur verið erfitt að átta sig á að barn sé vannært þar til ástandið er orðið mjög alvarlegt. Börn sem líta út fyrir að vera heilbrigð geta verið í mikilli hættu á að verða fyrir varanlegum heilsubresti eða þroskaskerðingu.
„Vannært barn er mun berskjaldaðra gegn sjúkdómum en ella og því getur stafað hætta af veikindum sem líkaminn myndi undir venjulegum kringumstæðum ráða við,“ sagði Ann M. Veneman, framkvæmdastýra UNICEF. „Meira en þriðjungur barna sem deyja úr lungnabólgu, niðurgangi og öðrum sjúkdómum gæti hafa lifað veikindin af ef ekki hefði verið fyrir það að þau þjáðust einnig af vannæringu.“
Mikilvægum árangri náð í Afríku og Asíu
Þrátt fyrir að 90% allra barna með vaxtaskerðingu vegna vannæringar búi í Asíu og Afríku hefur náðst mikilvægur árangur í báðum heimsálfunum. Í Asíu hefur tíðni vaxtaskerðingar fallið úr um 44% árið 1990 niður í 30% árið 2008. Í Afríku hefur tíðnin farið úr 38% árið 1990 niður í 34% árið 2008.
Fyrstu þúsund dagarnir mikilvægastir
Fyrstu 1.000 dagarnir frá getnaði og fram að tveggja ára afmæli barnsins eru þeir mikilvægustu fyrir þroska þess. Næringarskortur á þessu mikilvæga tímabili getur dregið verulega úr sjúkdómavörnum líkamans og skaðað félagslegan og vitrænan þroska barnsins.
„Þeir sem komast á legg þrátt fyrir vannæringu þurfa oft að sætta sig við verri heilsu og þroska- og vitsmunaskerðingu það sem eftir er,“ sagði Veneman.