Vissir þú að...

UNICEF er á svæðinu fyrir, á meðan og eftir að neyð skellur á. Sem heimsforeldri ert þú með okkur allan tímann.

Þú ert hér:  

V-dagurinn og UNICEF taka höndum saman

Í dag ýttu V-dagssamtökin á Íslandi og UNICEF úr vör sameiginlegu átaki til að vekja athygli á umfangi kynferðisofbeldis gagnvart konum og stúlkum í Austur-Kongó. Á sama tíma verða samtökin með söfnun meðal íslensks almennings til styrktar verkefnum í þágu ungra kynferðisbrotaþolenda í landinu. Smelltu hér ef þú vilt styrkja átakið.

Skipulagðar nauðganir í Austur-Kongó eru með hrottalegri birtingarmyndum kynferðisofbeldis í heiminum. Eve Ensler, upphafskona V-dagsins, hefur sagt að ekkert sem sem hún hefur séð og upplifað sé eins hræðilegt, skelfilegt og yfirþyrmandi og kynferðispyntingarnar í Austur-Kongó.
V-dagurinn og UNICEF, ásamt konum í Austur-Kongó, hafa því frá árinu 2007 tekið höndum saman í fjölmörgum löndum í þágu stúlkna og kvenna í landinu. Söfnunarféð rennur til starfs UNICEF til að breyta viðhorfi til nauðgana í Austur-Kongó og til uppbyggingar á athvarfi fyrir konur og stúlkur sem hefur verið nauðgað en eiga þess ekki kosta að fara aftur til fjölskyldna sinna. Í athvarfinu fá þær heilsugæslu, menntun og tækifæri til að afla sér tekna – en umfram allt umhyggju og öryggi.
Kynferðisofbeldi kemur okkur öllum við

Aðför að konum
„Það er mikilvægt að umheimurinn gefi þau skilaboð að kynferðisofbeldi verði ekki liðið hvar í heimi sem það fer fram,“ segir Diljá Ámundadóttir, nýr formaður V-dagssamtakanna á Íslandi. „Pyntingar eins og þær sem konur og ungar stúlkur mega þola í Austur-Kongó koma okkur öllum við sem manneskjum.“ Hún bætir því við að ekki sé hægt að kalla nauðganirnar í Austur-Kongó annað en aðför að öllum konum heimsins. „Ég kalla eftir samstöðu og stuðningi allra Íslendinga við systur þeirra í Austur-Kongó.“

Nauðgunum beitt í hernaðarlegum tilgangi
Árið 1998 hófust vopnuð átök í Austur-Kongó sem talin eru hafa kostað um fimm milljónir manna lífið. Allt frá upphafi átakanna hefur kynferðisofbeldi gegn konum og stúlkubörnum beitt í hernaðarlegum tilgangi; konum og stúlkum er skipulega nauðgað, til að niðurlægja þær og sundra fjölskyldum og samfélögum. UNICEF áætlar að þolendur nauðgana séu mörg hundruð þúsund og að þar af sé yfir helmingurinn börn. Þó stríðinu hafi formlega lokið árið 2003 eru nauðganir og ofbeldi enn daglegt brauð. „Stúlkur eru í mikilli hættu við daglegar athafnir eins og að sækja eldivið eða vatn og þær lifa í stöðugum ótta,“ sagði framkvæmdastýra UNICEF, Ann M. Veneman nýlega eftir heimsókn til Austur-Kongó. „Það verður að tryggja þeim öruggt umhverfi,“ sagði Veneman.

Hægt er að leggja söfnuninni lið með geiðslukorti hér. Einnig má hringja í sérstök söfnunarnúmer, 908-1000 (1.000 krónur), 908-3000 (3.000 krónur) og 908-5000 (5.000 krónur) eða kaupa sérstök styrktarspjöld í verslunum Hagkaupa.