Vissir þú að...

UNICEF bólusetur 100 milljónir barna á ári um allan heim. Talið er að það bjargi lífi 2,5 milljóna barna.

Þú ert hér:  

Árleg skýrsla UNICEF tileinkuð Barnasáttmálnum

Sérstök útgáfa árlegrar skýrslu Barnahjálpar Sameinuðu þjóðanna (UNICEF) um stöðu barna í heiminum (e. The State of the World's Children) var kynnt í dag. Í skýrslunni er sérstaklega fjallað um áhrif Barnasáttála Sameinuðu þjóðanna og þær áskoranir sem enn standa í vegi fyrir að réttindi barna séu uppfyllt. Skýrslan kemur nú út degi áður en þess er minnst að 20 ár eru síðan sáttmálinn var samþykktur af allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna.

„Barnasáttmálinn er útbreiddasti mannréttindasáttmáli mankynssögunnar,“ sagði Ann M. Veneman, framkvæmdastjóri UNICEF. „Sáttmálinn hefur breytt því hvernig litið er á börn og hvernig komið er fram við börn um allan heim.“

Barnasáttmálinn hefur verið fullgiltur af 193 ríkjum, en fullgilding telst sú ákvörðun ríkis að binda sig ákvæðum alþjóðasáttmála. Sáttmálinn setur fram lista af almennum réttindum barna, eins og réttinn til að halda persónulegum auðkennum, réttinn til nafns og ríkisfangs, réttinn til menntunar, og réttinn til bestu fáanlegu heilsugæslu og vernd frá misnotkun og vanrækslu.

Skylda ríkisstjórna að virða mannréttindi barna
Þessi réttindi eru studd af fjórum ákvæðum sáttmálans sem nefnd eru grundvallarreglurnar fjórar. Þær eru: jafnræði – bann við mismunun; að það sem barninu sé fyrir bestu liggi til grundvallar í öllum málum sem það varðar; réttur barna til lífs og þroska; og réttur barna til að láta skoðanir sínar í ljós og hafa áhrif.

Samkvæmt sáttmálanum er það skylda ríkisstjórna að gera allt sem í þeirra valdi stendur til að uppfylla þessi réttindi. Einnig er vikið að hinu sérstaka hlutverki sem foreldrar gegna í uppeldi barna sinna.

The State of the World’s Children-skýrslan í ár fjallar um tímalaust gildi Barnasáttmálans.
Fleiri en sjötíu ríki hafa innleitt sérstök barnalög sem byggja á ákvæðum Barnasáttmálans, og vitund um málefni barna og réttindabarátta þeim til handa hefur aukist til muna síðan sáttmálinn var samþykktur fyrir 20 árum síðan.

Margt áunnist á undanförnum 20 árum
Í skýrslunni kemur fram að margt hefur áunnist á undanförnum 20 árum í réttidnamálum barna:

•    Á undanförnum tveimur áratugum hefur jafnt og þétt dregið úr tíðni barnadauða (undir fimm ára). Heildarfjöldi barna undir fimm ára aldri sem lést árið 2008 var 8,8 milljónir samanborið við 12,5 milljónir árið 1990 sem er samdráttur um 28%;

•    Á tímabilinu milli áranna 1990 og 2006 fengu 1,6 milljarður manna aðgang að bættu neysluvatni;

•    Um 84 prósent allra barna í heiminum sem eru á grunnskólaaldri stunda nám og bilið á milli kynjanna í grunnskólaástundun minnkar stöðugt;
 
•    Börn eru ekki lengur gleymd þegar kemur að HIV/alnæmis faraldrinum;
 
•    Mikilvæg skref hafa verið stigin til að vernda börn gegn þátttöku í vopnuðum átökum og gegn mansali og þrælkun;

•    Giftingaraldur barna hækkar í sumum löndum og fjöldi þeirra stúlkna sem þurfa að þola afskurð á kynfærum fækkar jöfnum höndum.

Enn langt í land
Samkvæmt UNICEF eru réttindi barna þó almennt langt frá því að vera tryggð.

„Það er með öllu ólíðandi að börn skuli enn deyja af orsökum sem hægt er að koma í veg fyrir, eins og lungnabólgu, malaríu, mislingum og vannæringu,“ sagði Ann M. Venemann. „Fjöldi barna mun aldrei fá að ganga í skóla og milljónir barna skortir vernd gegn ofbeldi, misnotkun, arðráni og vanrækslu.“

Réttindi stúlkubarna þarfnast enn sérstakrar athygli. Meirihluti þeirra barna sem stunda ekki nám eru stúlkur, og stúlkur eru líklegri til að verða fyrir barðinu á kynferðislegu ofbeldi, að vera seldar mansali eða neyddar til að giftast barnungar. Á mörgum svæðum heimsins eru minni líkur á því að stúlkur njóti heilsugæslu en drengir.

Skýrslan inniheldur ritgerðir margra sérfræðinga í málefnum barna sem og dæmi um réttindastöðu barna í mörgum löndum.

Margar sérfræðiritgerðanna setja fram ráðgjöf um það hlutverk sem Barnasáttmálinn gæti leikið í heimi með síauknum mannfjölda, borgarvæðingu og vistfræðilegum áskorunum, á næstu 20 árum og lengur. Skýrslan kynnir einnig margar tillögur sem gætu tryggt að baráttan fyrir réttindum barna haldi áfram að bera ávöxt.

Afmælisins minnst um allan heim
Fleiri en 160 viðburðir munu eiga sér stað á heimsvísu til að minnast 20 ára afmælis sáttmálans. State of the world‘s children skýrslan er hluti af framlagi UNICEF til þeirra hátíðarhalda, ásamt því að minnast tímamótanna með pallborðsumræðum í höfuðstöðvum Sameinuðu þjóðanna í New York 20. nóvember.

„Stærsta áskorun næstu 20 ára verður að gera hagsmuni barna miðlæga í öllu því sem mannskepnan tekur sér fyrir hendur,” sagði Veneman. „Það er sameiginleg ábyrgð okkar allra að tryggja rétt hvers barns til afkomu, þroska, verndar og þátttöku.”