UNICEF er sjálfstæð stofnun innan Sameinuðu þjóðanna og sem slík er hún ekki á föstum framlögum frá Sameinuðu þjóðunum.
Þú ert hér:
Samkvæmt nýrri skýrslu Barnahjálpar Sameinuðu þjóðanna eru nú fleiri börn bólusett gegn banvænum sjúkdómum en nokkru sinni fyrr. Þrátt fyrir það munu að minnsta kosti 24 milljón kornabörn fara á mis við þessa mikilvægu heilsuvernd án frekara fjármagns og bætts aðgengis.
Horfið á myndband hér.
Samkvæmt skýrslu sem UNICEF gaf út í samstarfi við Alþjóðabankann og Alþjóðaheilbrigðismálastofnunina fær fimmta hvert barn ekki venjubundnar bólusetningar gegn barnasjúkdómum eins og mislingum, stífkrampa og blóðkreppusótt.
Skýrslan, State of the World’s Vaccines and Immunizations sýnir að nýleg minnkun á tíðni barnadauða er bein afleiðing af hærri tíðni bólusetninga.
„Dauðsföll af völdum mislinga á heimsvísu hafa minnkað um 74% milli 2004 og 2007 og bólusetningar spiluðu mikilvægt hlutverk í þessu mikilvæga skrefi í bættri heilsu barna,“ sagði framkvæmdastjóri UNICEF, Ann M. Veneman. „Slíkur árangur hlýtur að hvetja okkur öll áfram til þess að bólusetja fleiri börn út um allan heim gegn lífshættulegum sjúkdómum.“
Árangur af aukinni þjónustu
Á síðustu þremur áratugum hefur bólusetning gegn blóðkreppusótt, stífkrampa, mænusótt, mislingum og berklum orðið sífellt algengari en slíkar bólusetningar bjarga nú lífi nær 2,5 milljóna barna á hverju ári.
Bætt aðgengi og betri kæliaðstaða fyrir bóluefni eru nauðsynlegir þættir í því að auka bólusetningarþjónustu til bágstaddra barna.
Bólusetning er réttur barna
Helsta áskorun UNICEF við að uppfylla rétt barna til heilsuverndar og bólusetninga er að tryggja nægilegt fjármagn fyrir bólusetningar til handa bágstöddum börnum. Þörf er á um það bil einum milljarði bandaríkjadala á ári til þess að tryggja það að hvert eitt og einasta barn í 72 fátækustu löndum heims fái nauðsynlegar bólusetningar.
UNICEF í leiðandi hlutverki
UNICEF er stærsti veitandi bóluefna í þróunarlöndunum og útvegar nauðsynleg bóluefni fyrir meira en helming af börnum heims. Á árinu 2007 einu saman, keyptu samtökin 3.2 milljarða bóluefnaskammta fyrir bágstödd börn.