Vissir þú að...

45% þungaðra HIV smitaðra kvenna fá nú lyf til að koma í veg fyrir að ófædd börn þeirra fái veiruna, samanborið við 24% árið 2006. Þetta er árangur sem skiptir máli. Vertu með.

Þú ert hér:  

Hundrað þúsund óbreyttir borgarar á flótta í Sri Lanka

© UNICEF/NYHQ2008-1359/PietrasikUm hundrað þúsund óbreyttir borgarar, þar af þriðjungur börn, hafa flúið undan sókn stjórnarhers Sri Lanka inn á eina svæðið sem enn er undir stjórn skæruliða Tamíl-tígranna. Tugir þúsunda eru þó enn innikróaðir á átakasvæðinu. Konur og börn sem hafa flúið bardagana hafa í langan tíma búið við mjög erfið skilyrði, skort á fæðu, vatni og hreinlæti og þurfa nauðsynlega á neyðaraðstoð að halda. Áætlaður fjöldi fólks á vergangi og í bráðri þörf fyrir aðstoð er að nálgast 250.000 manns.

Í nánu samráði við samstarfsaðila sína vinnur UNICEF að því að mæta þörf þeirra sem flýja átakasvæðið. Það flóttafólk bætist í hóp þeirra 95.000 manna, kvenna og barna sem nú þegar njóta aðstoðar í flóttamannabúðum við bæina Vavuniya og Jaffna. Áhersla er lögð á að tryggja alþjóðlega viðurkennda þjónustustaðla í neyðaraðstoð hvað varðar aðgengi fólks að heilsugæslu, næringu, vatni, frárennslis- og hreinlætisaðstöðu, menntun og barnavernd.

UNICEF á Sri Lanka hefur beint 5 milljónum bandaríkjadala til neyðaraðstoðarinnar við flóttafólkið. Þar að auki er fjárþörf UNICEF til að bregðast við vaxandi þörf barna og kvenna á Sri Lanka talin vera 11.783.023 bandaríkjadalir.