UNICEF auglýsir eftir starfskröftum
UNICEF leitar að ábyrgu, kraftmiklu og jákvæðu fólki, 18 ára og eldra, sem vill leggja málstað samtakanna lið í sumar og fram á haust á höfuðborgarsvæðinu. Starfið felst í því að ganga í hús, kynna starf UNICEF, bjóða fólki að skrá sig sem heimsforeldri og styðja þannig fjölda þurfandi barna um allan heim. Vinnutíminn er á eftirmiðdögum og á kvöldin, alls 20 stundir á viku.
Við bjóðum launað starf með tilgang. Á móti vonumst við til að þú sért gædd/ur réttlætiskennd og sannfæringarkrafti, eigir auðvelt með að tengjast fólki og miðla málstað UNICEF til annara.
Áhugasamir sendi ferilskrá á unicef@unicef.is. Nánari upplýsingar í síma 5 62 62 62.