English version

UNICEF-styrktarspjöld á kaffihúsum Te & kaffi

Viðskiptavinum Te & kaffi býðst nú að styrkja starfsemi UNICEF með því að kaupa sérstök styrktarspjöld í sérsverslunum og á kaffihúsum fyrirtækisins. Spjöldin kosta 250 eða 500 krónur.

Það gera sér ekki margir grein fyrir hversu mikið UNICEF getur gert fyrir bágstödd börn fyrir fjárhæðir eins og 250 og 500 krónur. Fyrir fyrrnefndu upphæðina geta samtökin til dæmis keypt eitt kíló af sérstöku næringarkexi fyrir vannærð börn eða fest kaup á bóluefni gegn mænusótt fyrir 13 börn. Fyrir 500 krónur getur UNICEF svo útvegað bóluefni gegn mislingum fyrir 24 börn. Allt eru þetta hlutir sem geta skilið á milli lífs og dauða hjá ungum börnum.

Styrktarspjöldin eru í hinum áberandi bláa UNICEF-lit og ættu því ekki að fara framhjá neinum sem leggur leið sína á kaffihús Te & kaffi.

UNICEF vonar að almenningur taki vel í þessa fjáröflunarleið og þakkar jafnframt Te & kaffi fyrir ánægjulegt samstarf.