hlutfallslega flestir heimsforeldrar eru á Íslandi eða 5% þjóðarinnar. Svíar eru samt að ná okkur... koma svo, vertu með!
Þú ert hér:
Íslensk landsnefnd Barnahjálpar Sameinuðu þjóðanna (UNICEF) hefur fengið átta milljónir króna úthlutað frá utanríkisráðuneytinu vegna langvinns neyðarátands í Austur-Kongó. Styrkurinn rennur til verkefna UNICEF gegn kynferðisofbeldi og aðstoðar við konur og stúlkur sem orðið hafa fyrir nauðgunum.
Árið 1998 hófust vopnuð átök í Austur-Kongó sem talin eru hafa kostað um fimm milljónir manna lífið. Allt frá upphafi átakanna hefur kynferðisofbeldi gegn konum og stúlkubörnum verið beitt í hernaðarlegum tilgangi; konum og stúlkum hefur verið skipulega nauðgað til að niðurlægja þær og sundra fjölskyldum og samfélögum. UNICEF áætlar að þolendur nauðgana séu mörg hundruð þúsund og að þar af sé yfir helmingurinn börn. Þó stríðinu hafi formlega lokið árið 2003 eru nauðganir og ofbeldi enn daglegt brauð og konur og stúlkur eiga sér fá skjól gegn ógnum ofbeldisins.
Styrkur utanríkisráðuneytisins rennur m.a. til uppbygginar á athvarfi fyrir konur og stúlkur sem hefur verið nauðgað en eiga þess ekki kosta að fara aftur til fjölskyldna sinna. Í athvarfinu fá þær heilsugæslu, menntun og tækifæri til að afla sér tekna – en umfram allt umhyggju og öryggi. UNICEF í Austur-Kongó starfar auk þess ásamt stjórnvöldum að því að breyta viðhorfi til nauðgana, koma í veg fyrir að ofbeldismenn sleppi án dóms og styrkja regluverk til verndar börnum og konum.
Um þessar mundir standa V-dagurinn á Íslandi og UNICEF fyrir fjársöfnun meðal almennings vegna neyðarinnar í Austur-Kongó. Hægt er að leggja söfnuninni lið hér.