á hverjum degi smitast yfir 1150 börn undir 15 ára aldri af HIV. Taktu þátt í verkefnum UNICEF til að koma í veg fyrir fleiri smit.
Þú ert hér:
UNICEF vinnur nú hörðum höndum með yfirvöldum og þeim félagasamtökum sem eftir eru í Súdan að því að komast til móts við þarfir barna eftir að ríkisstjórn landsins bannaði starfsemi 16 frjálsra félagasamtaka (NGOs). Hömlun á hjálparstarfi stefnir mikilvægum verkefnum í hættu og þar með lífi hundruð þúsunda barna.
Á meðan enn er verið að meta ástandið og þarfir fólks hefur UNICEF strax varað við því að þessi nýja staða muni hafa verulega áhrif á mikilvæg verkefni, eins og dreifingu hreins drykkjarvatns, aukið hreinlæti, heilsugæslu og næringu fyrir hundruð þúsunda barna. Áhrifanna mun að mestu gæta í Darfur-héraði þar sem áætlað er að 2,7 milljónir manna hafa verið á vergangi í allt að fjögur ár og helmingurinn börn. Mörg þeirra frjálsu félagasamtök, sem nú fá ekki heimild til að starfa í héraðinu, voru lykilsamstarfsaðilar UNICEF.
Minnsta truflun á heilsugæslu og dreifingu matvæla getur aukið vannæringu meðal barna mjög hratt, sér í lagi þar sem nú styttist í svokallað ,,hunger gap season", þ.e. í byrjun apríl eru þurrkatíminn að renna skeið sitt á enda og árlegt flóðatímabil hefst í byrjun maí. Flóðin auka hættu á kólerufaraldri og nú þegar UNICEF getur ekki reitt sig lengur á hjálparsamtökin er líklegt að undirbúningi til að hefta útbreiðslu kóleru sé stefnt í hættu.
UNICEF, ásamt öðrum hjálparsamtökum Sameinuðu þjóðanna, hefur þegar tekið mikilvæg skref til að tryggja fólki grundvallarþjónustu á næstu vikum, en því miður hafa hjálparsamtökin ekki starfskrafta eða fjármagn til að standa undir öllum þeim langtímaverkefnum sem annars hefði verið hægt að ráðast í með hjálp frjálsu félagasamtakanna. UNICEF mun reyna að fá samtökin til að snúa aftur til starfa.
UNICEF áætlar að samtökin þurfi um 23 milljónir dala til að geta staðið undir brýnasta hjálparstarfinu út júní 2009.