English version

Réttindaganga og áheitahlaup á sumardaginn fyrsta

Kampur, frístundamiðstöð miðborgar- og hlíðahverfis, stendur fyrir hátíð á sumardaginn fyrsta. Dagurinn hefst klukkan 13 við Austurbæjarskóla þegar gengin verður réttindaganga niður á Miklatún. Þar verður síðan dagskrá frá klukkan 14 til 16. Á hátíðinni verður m.a. hægt að sjá afrakstur af vinnu barna og unglinga með Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna.

Boðið verður upp á ýmis atriði frá frístundaheimilum og félagsmiðstöðvum í Austurbæjar-, Háteigs- og Hlíðaskóla. Yngri börnin syngja lög sem fjalla um réttindi barna og unglingarnir verða með söngatriði, auk þess sem þeir munu selja boli sem hannaðir eru með Barnasáttmálann að leiðarljósi.

UNICEF-hreyfingin hefst svo klukkan 15 og stendur í klukkustund. Um er að ræða áheitasöfnun fyrir UNICEF sem börn og unglingar taka þátt í með því að hlaupa fyrirfram ákveðna leið eða spreyta sig á þrautabraut sem sett verður sérstaklega upp. Hefur aðstandendum þegar verið boðið að heita upphæð á hvern hring sem farinn er.

Skátafélagið Landnemar tekur einnig þátt í hátíðinni. Félagið sér um veitingasölu á túninu ásamt því að bjóða upp á skemmtilegar uppákomur.