UNICEF er stærsti kaupandi bóluefna í heiminum. Samtökin útvega 40% barna í þróunarlöndunum bólusetningar. Það jafngildir 2,5 milljörðum skammta af bóluefni árlega.
Þú ert hér:
UNICEF, ásamt öðrum stofnunum Sameinuðu þjóðanna, er tilbúin til að aðstoða stjórnvöld í Mexíkó ef H5N1-veiran, hin svokallaða „svínaflensa“, heldur áfram að breiðast út.
UNICEF styður einnig ríki á svæðinu sem hafa ekki nægilegt bolmagn til að grípa til viðeigandi aðgerða. Ríkisstjórnir margra landa á svæðinu vinna að mati á ástandinu og hafa rætt við UNICEf um að hefja forvarnar- og viðbragðsstarf, svo sem að upplýsa fólk um handþvott og aðrar hreinlætisvenjur sem hefta útbreiðslu veirunnar.
Að svo stöddu er ekki þörf á fjársöfnun til að bregðast við ástandinu. UNICEF mun ráðfæra sig við stjórnvöld í viðkomandi ríkjum og við samstarfsstofnanir innan Sameinuðu þjóðanna til að meta fjárþörf eftir því hvernig ástandið þróast.