þegar neyð skellur á getur UNICEF brugðist við á innan við 24 klukkustundum.
Þú ert hér:
Klukkan 18.45 á morgun, miðvikudaginn 27. maí, mun athygli heimsins beinast að Róm þegar Manchester United og FC Barcelona mætast í úrslitaleik meistaradeildar UEFA í fyrsta skipti í sögunni.
Á vellinum eru Manchester United og Barcelona miklir andstæðingar. En utan vallar eiga þessi félög sameiginlegt markmið, sameiginlegan málstað: að hefta hin gríðarlegu áhrif sem HIV og alnæmi hafa á börn og ungt fólk um allan heim. Í samstarfi við Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna (UNICEF) hefur hvort lið um sig einhent sér í að takast á við þennan lífshættulega sjúkdóm og veita ungu fólki sem þjáist af hans völdum betri framtíð. Saman styðja liðin átak UNICEF Sameinuð í þágu barna, sameinuð gegn alnæmi (e. Unite for Children, Unite against Aids).
Af þessu tilefni hafa framkvæmdastjóri Manchester United og forseti FC Barcelona sent frá sér sameiginlega tilkynningu í dag. Í tilkynningunni segir m.a.:
„Tölurnar eru ógnvekjandi. Að minnsta kosti 2 milljónir barna yngri en 15 ára eru smituð af HIV í heiminum í dag. Á þeim 90 mínútum sem leikurinn á miðvikudag stendur yfir munu 50 börn láta lífið af völdum alnæmis. HIV og alnæmi hafa skelfileg áhrif á ungt fólk um heim allan; ræna börn foreldrum sínum, æsku og framtíð og gera vonir og gleði heilla samfélaga að engu. En við getum lagt okkar að mörkum.“
Vilja nota áhrifamátt fótboltans til góðs
Enn fremur segir: „Það verða ekki einungis áhangendur á Englandi, Spáni og í Katalóníu sem fylgjast með leiknum á miðvikudaginn, heldur ástríðufullir og vongóðir aðdáendur fótboltaíþróttarinnar um allan heim. Svona er máttur fótboltans mikill. Fótboltinn getur gefið von og náð til fólks þvert á bakgrunn og menningu. Leikmenn okkar eru fyrirmyndir milljóna manna og við finnum það að félög okkar geta gegnt mikilvægu hlutverki við að breyta lífum barna. Sameinuð eru bæði félög áfram um að nota þennan breytingarkraft til að styðja UNICEF, með því að breiða út lífsnauðsynlegan boðskap um heilsugæslu, menntun og forvarnir gegn HIV. Saman erum við staðráðin í að styðja mikilvæg verkefni UNICEF um allan heim og vernda réttindi barna í hvívetna.
Á miðvikudagskvöldið geta allir verið vissir um að samkeppni okkar á vellinum verður áköf og annað liðið mun komast á spjöld sögunnar. En utan vallar vonast bæði félög til að skrifa sig á þau spjöld með öðrum hætti. Ásamt UNICEF vinnum við sameinuð til að ná því takmarki að í heiminn fæðist kynslóð án alnæmis. Við höfum öll hlutverki að gegna.“
Nánar um samstarf UNICEF og Manchester United
Árið 1999 varð Manchester United fyrsta breska félagsliðið til að ganga til samstarfs við UNICEF. Samstarfið varð til þess að 1 milljón barna á Indlandi fengu aðgang að grunnskólamenntun. Einnig var verkefni UNICEF gegn barnaþrælkun styrkt. Árið 2005 hét félagið stuðningi við heimsátak UNICEF gegn alnæmi. Samstarf manchester United og UNICEF ber yfirskriftina „United for UNICEF“ og hefur þegar aflað 2,2 milljónum punda. Yfir 1,5 milljónir barna um allan heim hafa fengið hjálp fyrir tilstuðlan verkefnisins. Árið 2009 eiga Manchester United og UNICEF 10 ára samstarfsafmæli. Með starfi Manchester United-sjóðsins og UNICEF hefur félagið skuldbindið sig í þágu ungs fólks.
Nánar um samstarf UNICEF og FC Barcelona
Árið 2006 undirrituðu FC Barcelona og UNICEF nýstárlegan fimm ára samstarfssamning. Samstarfið felur í sér notkun einkennismerkis UNICEF á liðsbúningum FC Barcelona, en um er að ræða fyrstu utanaðkomandi merkinguna á búningi Barcelona í nær 110 ára sögu félagsins. Þess utan hefur FC Barcelona árlega látið 1,5 milljónir evra renna til baráttu UNICEF gegn HIV/alnæmi og áhrifum sjúkdómsins á líf barna, þ.e. 7,5 milljónir evra á samstarfstímabilinu. Síðan samstarf FC Barcelona og UNICEF hófst hefur það stutt við fleiri en 100 þúsund börn, flest frá ríkjum í sunnanverðri Afríku.