Vissir þú að...

yfir helming dauðsfalla barna má rekja til vannæringar. Fyrir 1000 krónur getur þú greitt fyrir 16 poka af næringaríkri fæðu fyrir vannærð börn.

Þú ert hér:  

Ungbarnadauði fátíðastur á Íslandi

Hvergi í heiminum var ungbarnadauði fátíðari árið 2007 en á Íslandi, eða 1,5 af 1.000 lifandi fæddum. Þetta er meðal þeirra upplýsinga sem finna má í Landshögum 2009, hagtöluárbók Hagstofu Íslands, sem kom út sl. mánudag. Nánar má fræðast um ritið á vef Hagstofunnar.

Samkvæmt Landshögum 2009 var ungbarnadauði hins vegar tíðastur í Tyrklandi af öllum Evrópuríkjum, eða 16,7 af 1.000 lifandi fæddum árið 2007. Tíðni ungbarnadauða er þó hvergi hærri en í Síerra Leóne eða 270 af hverjum 1.000 lifandi fæddum, skv. tölum frá UNICEF.