Vissir þú að...

126 milljónir barna stunda lífshættulega vinnu. Vertu með okkur í liði til að breyta þessu.

Þú ert hér:  

Tíðni ungbarnadauða enn hæst í Síerra Leóne

© UNICEF/Olivier AsselinTíðni ungbarnadauða, þ.e. hlutfallslegur fjöldi barna sem deyr fyrir fimm ára aldur, hefur um áraskeið verið hæst í Vestur-Afríkuríkinu Síerra Leóne. Þó ástandið hafi batnað á undanförnum árum er tíðnin þar enn hæst eða 27%. Síerra Leóne er einnig það land í heiminum þar sem tíðni mæðradauða er hæst. Áætlað er að fyrir hverjar 100.000 fæðingar láti 1.300 mæður lífið. Til samanburðar má geta þess að ungbarnadauði á Íslandi er 0,3% og mæðradauði mælist ekki.

Meira en þriðjungur síerraleónskra barna undir fimm ára aldri er vannærður. Skortur á fjölbreyttu fæði vegna fátæktar, hækkandi matarverð, tregða við að leita læknishjálpar og vanþekking á næringu ungabarna eru allt þættir sem ýta undir vannæringu barna í landinu.

Í samvinnu við Alþjóðaheilbrigðismálastofnunina, Matvælaáætlun Sameinuðu þjóðanna og fleiri aðila styður UNICEF sértæk úrræði vegna vannæringar barna í öllum 13 héruðum Síerra Leóne. Um er að ræða næringarmiðstöðvar sem komið hefur verið upp við heilsugæslustöðvar víðs vegar um landið. Í miðstöðunum er tekið á móti alvarlega vannærðum börnum þar sem þau fá viðeigandi meðferð; þeim eru gefnar próteinríkar kexkökur, sérstök næringarmjólk, sölt sem koma í veg fyrir ofþornun, vítamín og önnur næringarefni.