English version

Fjölskylduhátíð 20. desember

UNIMA á Íslandi og UNICEF efna til fjölskylduhátíðar sunnudaginn 20. desember.  Boðið verður upp á alls sex brúðuleikhússýningar yfir daginn sem allar eru ætlaðar fyrir börn á leikskólaaldri og fyrsta bekk grunnskóla. Sýningarnar fara fram í húsakynnum UNICEF að Laugavegi 42, annarri hæð og er miðaverði stillt í hóf.

Allur ágóði af hátíðinni rennur til verkefna UNICEF um allan heim í þágu bágstaddra barna. Einnig verður selt heitt kakó og boðið upp á piparkökur. Allir eru hjartanlega velkomnir meðan húsrúm leyfir.

Dagskráin er sem hér segir:

Kl. 10.00 Númi
Kl. 11.00 Númi
Kl. 13.00 Jólaleikur
Kl. 14.00 Jólaleikur
Kl. 16.00 Súpan hennar Grýlu
Kl. 17.00 Súpan hennar Grýlu

Hver sýning er um 20-30 mínútur.

UNIMA (Union International de la Marionette) eru alþjóðleg samtök brúðuleikhúsfólks sem voru stofnuð í Prag árið 1929. Meginmarkmið samtakanna er að efla og kynna leikbrúðulistina í alþjóðlegu samstarfi. UNIMA heyrir undir Menningarmálastofnun Sameinuðu þjóðanna (UNESCO) og hafa mannréttindi og mannúðarmál ávallt verið í brennidepli í starfi samtakanna. UNIMA á Íslandi hefur staðið fyrir fjölda viðburða þar sem sýningargestir eru leiddir inn í töfrandi heim brúðuleikhússins með lifandi og fjölbreyttri dagskrá.

Nánar um sýningarnar:

Númi (klukkan 10 og 11)
Brúðuleikhús Helgu Steffensen, í samvinnu við Slysavarnarfélagið Landsbjörg, sýnir leikritið um strákinn Núma. Brúðuleikritið er byggt á bókinni Númi með höfuðin sjö eftir Sjón. Brúður og handrit eru eftir Helgu sem einnig stjórnar brúðunum ásamt Höllu Ólafsdóttur. Sýningin tekur 30 mínútur.

Jólaleikur (klukkan 13 og 14)
Hér er á ferðinni falleg og skemmtileg útfærsla á jólaguðspjallinu þar sem mikil áhersla er lögð á þátttöku barnanna. Í leiksýningunni hefur Leiðindaskjóða, litla systir jólasveinanna, verið fengin til að skemmta krökkunum. Hún er alveg jafn rugluð og þau á þessum hamagangi og dettur ekkert annað í hug en að lesa uppúr biblíunni þeim til skemmtunar. Hana rekur þó fljótlega í vörðurnar því hún skilur hvorki upp né niður í þessum torskylda texta. Hún rekst á nokkra jólapakka og þegar hún gægist ofaní þá finnur hún alls kyns dýr og brúður sem reynast vera persónurnar úr jólaguðspjallinu. Eftir því sem hún opnar fleiri pakka fer jólaguðspjallið að rifjast upp fyrir henni. Börnin taka virkan þátt í sýningunni og aðstoða persónur verksins.

Það er leikhópurinn Tíu fingur sem flytur verkið sem er í leikstjórn Þórhalls Sigurðssonar. Handit og brúður eru eftir Helgu Arnalds. Sjá nánar hér.

Súpan hennar Grýlu (klukkan 16 og 17)
Sögusvuntan segir okkur söguna af því þegar minnsta tröll í heimi lendir í pottinum hennar Grýlu. Leikstjóri er Helga Arnalds en leikur, brúðugerð og handrit eru í höndum Hallveigar Thorlacius. Sjá nánar hér.