UNICEF treystir því eingöngu á frjáls framlög einstaklinga, fyrirtækja, félagasamtaka og ríkisstjórna.
Þú ert hér:
Tíu ungmenni hvaðanæva að af landinu munu næstu 12 fimmtudaga fjalla um Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna í nýjum útvarpsþáttum sem hefja göngu sína á Rás 1 á morgun. Í ár er þvi fagnað að tuttugu ár eru frá því að þessi mikilvægi mannréttindasáttmáli var samþykktur á allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna.
Ungmennin eru á aldrinum 14-16 ára. Í þáttunum munu þau fjalla um áhrif og þýðingu Barnasáttmálans fyrir börn heimsins og spjallað við fjölmarga aðila á öllum aldri um mismunandi ákvæði sáttmálans og fjölbreytt málefni sem þeim tengjast. Þættirnir eru samstarfsverkefni Ríkisútvarpsins, Barnahjálpar Sameinuðu þjóðanna (UNICEF) og dagskrárgerðarfólksins unga.
Eiga börn og ungmenni rétt á einkalífi? Mega börn láta skoðanir sínar í ljós í opinberum málum? Hvað er barnaþrælkun? Eiga börn rétt á að leika sér og hvíla sig? Má ráða því hvort maður gengur í skóla?
Leitað verður svara við þessum spurningum og ótal fleiri í þáttunum sem verða á dagskrá á hverjum fimmtudegi fram að jólum, frá klukkan 15.25, og eru síðan endurteknir á laugardögum klukkan 20.40.
Fréttaritarar framtíðarinnar
Ungmenninn sem stjórna þáttunum sóttu fyrr á árinu námskeið á vegum UNICEF, Ríkisútvarpsins og Morgunblaðisins. Markmið námskeiðsins var að þjálfa ungmenni í að koma hugmyndum sínum og skoðnum á framfæri við fjölmiðla og ekki síður í fjölmiðlum. Afrakstur námskeiðsins voru blaðagreinar og útvarpsinnslög sem voru birt og flutt á Rás 1 og í Morgunblaðinu.
Þess má geta að í Barnasáttmálanum er m.a. kveðið á um rétt barna til að láta skoðanir sínar og hugmyndir í ljós.
Barnasáttmálinn 20 ára
Sem fyrr segir eru þættirnir gerðir í tilefni af 20 ára afmæli Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna, þann 20. nóvember næstkomandi. Enginn mannréttindasamningur hefur verið fullgiltur af jafn mörgum ríkjum og Barnasáttmálinn. Einungis tvö af aðildarríkjum Sameinuðu þjóðanna hafa ekki fullgilt samninginn. Ísland fullgilti hann árið 1992 en frumvarp um lögfestingu sáttmálann hérlendis verður lagt fyrir alþingi í vetur.