Velgjörðasendiherrar UNICEF tala fyrir réttindum barna
Velgjörðasendiherrar UNICEF hafa tekið höndum saman í tilefni 20 ára afmælis Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna og koma fram í myndböndum sem ætlað er að draga athygli að þessum merka áfanga í réttindum barna.
Í hinum 30 sekúndna myndböndum tala velgjörðarsendiherrarnir um þau málefni barna sem eru þeim hvað hugleiknust. Leikkonan og aðgerðarsinninn Mia Farrow, til dæmis, talar um rétt barna til þess að hljóta vernd gegn ofbeldi. Ofurfyrirsætan og viðskiptakonan Claudia Schiffer talar um rétt barna til gæðamenntunar og leikarinn og mótorhjólatöffarinn Ewan McGregor talar um rétt barna til þess að hljóta vernd gegn HIV/alnæmi.
Réttur hvers barns
Í myndbandi sínu segir söngkonan og söngskáldið Angélique Kidjo: “Fyrir of mörg börn á þessari jörð er lífið helvíti. Þau eru neydd til þess að taka þátt í stríði… neydd til þess að vinna við hættulegar aðstæður… þau eru kynferðislega misnotuð… eða ganga kaupum og sölum. Höfum eitt á hreinu: Það er réttur hvers barns að hljóta vernd.”
Herferð þessi inniheldur einnig myndbönd frá Raniu Al-Abdullah Jórdaníudrottningu, söngvaranum Youssou N’Dour, rithöfundinum og fyrrverandi barnahermanninum Ismael Beah og fleirum.
Horfið á öll myndböndin á vefsíðu UNICEF sem er helguð 20 ára afmæli Barnasáttmálans, www.unicef.org/rightsite. Fleiri myndbönd munu bætast við á næstu vikum.