UNICEF fordæmir nauðganir í Austur-Kongó
Árið 1998 hófst stríð í Austur-Kongó sem er talið hafa kostað um fimm milljónir manna lífið. Þó stríðinu hafi formlega lokið árið 2003 eru nauðganir og ofbeldi enn daglegt brauð. Framkvæmdastjóri UNICEF, Ann M. Veneman, heimsótti nýverið barnunga þolendur nauðgana og ofbeldis í austurhéruðum landsins.
Meðal þeirra sem Veneman ræddi við í Austur-Kongó var 15 ára gömul stúlka sem hún hafði áður hitt í heimsókn sinni til þessa stríðshrjáða lands árið 2006.
„Árið 2006 hitti ég tólf ára gamla stúlku sem hafði verið nauðgað hrottalega af fjórum mönnum,“ sagði Veneman. „Saga hennar hefur fylgt mér allar götur síðan. Nú þremur árum síðar er hún enn sárþjáð á líkama og sál og úr augum hennar skín angist.“
Stúlkan getur ekki gengið í skóla og hefur ekki efni á að hitta lækni. Nokkrar góðhjartaðar konur í þorpinu sem hún býr í veita henna skjól en hafa stundum ekki einu sinni efni á að gefa henni að borða.
„Fyrir þremur árum sagði hún mér að hana langaði til að verða nunna þegar hún yrði stór,“ sagði Veneman. „Í dag, þegar ég spurði hana, sagði hún mér að það væri enn markmið hennar … val hennar segir meira en þúsund orð.“
Panzi-spítali
Veneman heimsótti Panzi-spítalann sem styrktur er af UNICEF. Þar hitti Veneman stofnanda spítalans, Dr. Denis Mukwege, og starfsfólk hans. Þessi merkilegi spítali veitir ekki aðeins læknisaðstoð vegna líkamsáverka í kjölfar kynferðisofbeldis heldur er hann einnig öruggt athvarf fyrir óteljandi þolendur nauðgana.
Á spítalanum hitti Veneman einnig skjólstæðinga Dr. Mukwege, m.a. unga stúlku sem deildi með henni sögu sinni.
„Þessi unga stúlka sagði mér að fyrir ári síðan hefði henni verið ítrekað nauðgað. Það sem mér blöskraði mest í frásögn hennar var að eftir að fyrsti hermaðurinn hafði nauðgað henna tók annar klút úr vasa sínum til að þrífa hana og hélt svo nauðgununum áfram. Þetta gerðist endurtekið.“
Stúlkan náði sér líkamlega en örin á sál hennar munu aldrei hverfa. Í júní á þessu ári komu svo hermenn til þorpsins hennar á nýjan leik og henni var aftur nauðgað.
„Að ganga í gengum slíka reynslu tvisvar er nógu skelfilegt út af fyrir sig,“ sagði Veneman. „En það sem hún sagði mér næst kramdi hjarta mitt … eiginmaður hennar vísaði henni á dyr og sagði að þau gætu ekki búið saman eftir að henni hefði verið nauðgað svona oft.“
Á Panzi-spítala hefur hún hins vegar fundið skjól og nýtur umhyggju Dr. Mukwege og starfsfólks hans.
Ánægjuborgin
Panzi-spítalinn, UNICEF og V-dagssamtökin hafa tekið höndum saman vegna uppbyggingar „Ánægjuborgarinnar“ (e. City of Joy), athvarfs fyrir konur og stúlkur sem hefur verið nauðgað en eiga þess ekki kosta að fara aftur til fjölskyldna sinna. Í Ánægjuborginni fá konurnar og börn þeirra heilsugæslu, menntun og tækifæri til að afla sér tekna.